Segir Nyhedsavisen ekki hafa verið sína hugmynd

Gunnar Smári Egilsson segir Jón Ásgeir Jóhannesson skrifa nafnlausa pistla í Fréttablaðið, hafa viljað fara í fríblaðaútgáfu í London og viljað kaupa Berlinske Tidende. Hann hafi verið fullfær um að tapa sínum peningum sjálfur.

nyhedsavisen
Auglýsing

Gunnar Smári Egils­son segir að Nyhedsa­visen, danska útgáfan af Frétta­blað­inu, hafi aldrei verið sín hug­mynd. Hann hafi búið til, að beiðni eig­enda 365 og síðar Dags­brúnar áætl­anir um hvernig Frétta­blaðs­mód­elið gæti litið út á stærri mörk­uð­um, finna danska aðila til að end­ur­gera Frétta­blaðið þar í andi og ferð­ast um heim­inn til að reyna að finna mögu­lega með­fjár­festa. Jón Ásgeir Jóhann­es­son hafi viljað fara í frí­blaða­út­gáfu í London, sem Gunn­ari Smára reikn­að­ist til að myndi kosta 90 millj­ónir króna á dag, og kaupa danska stór­blaðið Berl­inske Tidende. Af hvor­ugu varð. Gunnar Smári segir að þrátt fyrir linnu­lausar ásak­anir Jóns Ásgeirs „um að ein­hver annar hafi tapað pen­ing­unum hans er það svo að hann var alveg full­fær um það sjálf­ur. Hann er svo góður í því að vafa­mál eru um að nokkur annar Íslend­ingur hafi tapað meira fé en hann, einn og óstudd­ur.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í stöðu­upp­færslu Gunn­ars Smára á Face­book í dag. 



Til­efnið er nafn­laus skrif í skoð­ana­dálk­inn „Stjórn­ar­mað­ur­inn“, sem birt­ast í Mark­aðn­um, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, og útlegg­ingar Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns og ráð­herra, á þeim skrif­um. Í nafn­lausa dálknum er Gunnar Smári við­fangið og þar farið yfir nýleg vand­ræði Frétt­ta­tím­ans, sem hann stýrði og glímir nú við mik­inn rekstr­ar­vanda. Þær aðstæður eru settar í sam­hengi við það þegar Gunnar Smári stýrði Dags­brún, félagi sem síðar varð að 365, útgef­anda Frétta­blaðs­ins. 

Auglýsing

Í dálknum er Gunn­ari Smára meðal ann­ars gefið að hafa sýnt af sér sinnu­leysi með ann­arra manna fé í tengslum við íslensku sjón­varps­stöð­ina NFS og þegar danska frí­blaðið Nyhedsa­visen var sett á lagg­irn­ar. Þessi meinta slæ­lega rekstr­ar­frammi­staða er síðan sett í sam­hengi við það að Gunnar Smári er nú að stofna Sós­í­alista­flokk Íslands og varað við því að hann kom­ist í almanna­fé. „ Það er nefni­lega ekk­ert í langri rekstr­ar­sögu Gunn­ars Smára sem bendir til þess að fólkið í land­inu eigi að treysta honum fyrir almanna­fé. Um það geta fjöl­margir einka­fjár­festar vott­að,“ segir hinn óþekkti Stjórn­ar­mað­ur. Björn Bjarna­son tekur svo í svip­aðan streng í færslu á blogg­síðu sinni.

Dellu­hug­myndir um að aðrir hafi skuld­sett Jón Ásgeir

Gunnar Smári segir í stöðu­upp­færslu sinni að Jón Ásgeir haldi sjálfur á penna Stjórn­ar­manns­ins og að Björn sé nú að styðja „dellu­hug­myndir Jóns Ásgeirs um að ég og allir aðrir en hann sjálfur hafi skuld­sett hann og ekki borgað skuld­irnar hans. Og lík­lega líka að ein­hverjir aðrir hafi flutt pen­inga sem hann svindl­aði út úr fyr­ir­tækjum sem honum var treyst fyrir í skatta­skjól.“ Síðan rekur hann aðkomu sína að fyr­ir­tækjum Jóns Ásgeirs, sem er enn tengdur Frétta­blað­inu og 365 í dag, ann­ars vegar sem eig­in­maður aðal­eig­and­ans og for­stjór­ans, Ingi­bjargar Pálma­dótt­ur, og hins vegar sem stjórn­andi þess, þótt hans sé ekki getið í skipu­riti.

Gunnar Smári fer nokkuð ítar­lega yfir Nyhedsa­visen-æv­in­týrið og segir að lok­um: „Ég hef enga inn­sýn inn í hvort það hefði getað lifað af við eðli­legri aðstæð­ur, hef aldrei velt því fyrir mér. Til þess skortir mig reynslu og inn­sýn inn í danskt við­skipta­líf. Sú litla reynsla sem ég öðl­að­ist af því benti til að það eru víðar til kol­krabbar en á Íslandi, gamlir pen­ingar standa saman vörð um hags­muni sína. Það má því vera að það hefði alltaf verið of dýrt að koma Nyhedsa­visen í fót; að leiðin upp væri og löng og dýr svo að mögu­legur hagn­aður á end­anum gæti aldrei rétt­lætt fjár­fest­ing­una. Þetta spurs­mál var öllum ljóst sem komu að verk­efn­inu og meiri­háttar hlægi­legt þegar maður sem vill láta líta á sig meiri­háttar fjár­fest­ingagúrú skuli halda því fram að það hafi komið sér á óvart, vegna þess að ein­hver Gunnar Smári benti honum ekki á það. Þrátt fyrir linnu­lausar ásak­anir Jón Ásgeir um að ein­hver annar hafi tapað pen­ing­unum hans er það svo að hann var alveg full­fær um það sjálf­ur. Hann er svo góður í því að vafa­mál eru um að nokkur annar Íslend­ingur hafi tapað meira fé en hann, einn og óstudd­ur.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None