Engin starfsemi á Þingvöllum án leyfis

Drög að frumvarpi frá umhverfisráðherra gera ráð fyrir því að engin atvinnutengd starfsemi megi fara fram á Þingvöllum án samnings við Þingvallanefnd. Nefndin mun einnig þurfa að gefa leyfi fyrir öllum viðburðum, og fær skýrar heimildir til gjaldtöku.

kirkjan þingvellir
Auglýsing

Þing­valla­nefnd eða þjóð­garðs­vörður á Þing­völlum munu þurfa að gefa leyfi fyrir öllum skipu­lögðum við­burðum og verk­efnum innan þjóð­garðs­ins, sam­kvæmt frum­varpi Bjartar Ólafs­dóttur umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. Drög að frum­varp­inu voru birt á vef­síðu ráðu­neyt­is­ins fyrir skömmu. 

Verði frum­varpið að lögum verður einnig óheim­ilt að reka atvinnu­tengda starf­semi í þjóð­garð­inum án samn­ings við Þing­valla­nefnd. 

Þá skýra lögin heim­ildir til gjald­töku innan þjóð­garðs­ins. Sam­kvæmt frum­varp­inu má ákveða að taka gesta­gjöld innan garðs­ins fyrir veitta þjón­ustu og fyrir aðgang að svæð­inu „til að mæta kostn­aði við þjón­ustu, upp­bygg­ingu og við­haldi inn­viða, rekstri og eft­ir­lit með dval­ar­gest­u­m.“ Gjöldin munu renna til þjóð­garðs­ins. Þá verður líka leyfi­legt að inn­heimta gjöld vegna leyf­is­veit­inga og samn­inga. 

Auglýsing

„Fjöldi gesta sem leggur leið sína í þjóð­garð­inn á Þing­völlum hefur marg­fald­ast á síð­ustu árum með þeim afleið­ingum að ekki hefur verið tækt að halda uppi virkri nátt­úru­vernd, varð­veislu menn­ing­arminja og vinna að upp­bygg­ingu á svæð­inu með full­nægj­andi hætti. Kveður frum­varp þetta á um breyt­ingar á núgild­andi lög­gjöf sem er ætlað að stuðla að því að hægt verði að taka á móti öllum þeim fjölda gesta sem leggur leið sína í þjóð­garð­inn án þess að röskun verði á nátt­úru og menn­ing­arminj­u­m,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­in­u. 

Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við lög um Vatna­jök­uls­þjóð­garð, en lögum um hann er einnig breytt þannig að heim­ild er til gjald­töku í þeim þjóð­garð­i. 

Fram kemur í grein­ar­gerð­inni að lögin um þjóð­garð­inn á Þing­völlum geri yfir­völdum ekki mögu­legt að vernda nátt­úr­una með full­nægj­andi hætti. Ekki sé hægt að varð­veita, við­halda og vinna að upp­bygg­ingu menn­ing­arminja og stuðla að öryggi gesta. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None