Segir réttlætanlegt að taka skipulagsvald af sveitarstjórnum

Njáll Trausti Friðbertsson segir það réttlætanlegt að skipulagsvaldið verði tekið af Reykjavíkurborg ef það er til að gæta öryggishagsmuna þjóðarinnar.

Auglýsing
Njáll Trausti Friðbertsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi.
Njáll Trausti Friðbertsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi.

Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi flug­um­ferð­ar­stjóri á Akur­eyri, segir það vera rétt­læt­an­legt að taka skipu­lags­vald af sveit­ar­stjórnum ef til­gang­ur­inn er að gæta að örygg­is­hags­munum þjóð­fé­lags­ins í heild.

Þetta sagði Njáll Trausti í umræð­unum um flug­völl­inn í Vatns­mýri í Viku­lok­unum á Rás 1. Til­efni umræð­anna er umræða sem Logi Már Ein­ars­son, þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hóf í hlað­varps­þætt­inum Aðför­inni hér á Kjarn­anum um síð­ustu helgi.

Logi Már líkti veru flug­vall­ar­ins við það ef hann sjálfur myndi reyna að troða sér í ferm­ing­ar­föt­in. Nú væri þrengt að Reykja­vík­ur­flug­velli í skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og að nauð­syn­legt væri að und­ir­búa það vel hvað tæki við þegar flug­vell­inum yrði lok­að. Honum yrði lokað á end­anum hvort sem okkur lík­aði það betur eða verr.

Auglýsing

Njáll Trausti hefur verið virkur í sam­fé­lag­inu Hjartað í Vatns­mýri. Hann segir að orð­ræða þess sam­fé­lags hafa í meg­in­at­riðum snú­ist um að flug­völl­ur­inn verði að fá að vera á meðan það er ekki búið að finna betri eða sam­bæri­lega lausn á högun inn­an­lands­flugs og sjúkra­flugs hér á landi.

­Bjarkey Olsen, þing­kona Vinstri grænna, var einnig gestur Viku­lokanna. Hún benti á að mik­il­vægt væri að allir rök­ræddu sama hlut­inn um sama hlut­inn. Hún spurði svo Njál Trausta hvort honum þætti eðli­legt að skipu­lags­valdið yrði tekið úr hendi Reykja­vík­ur­borg­ar.

„Ef að sér­hags­munir eins sveit­ar­fé­lags ganga gegn hags­munum heils þjóð­fé­lags þá er það eðli­leg­t,“ svar­aði Njáll Trausti. Hann sagði einnig að það væri fram­hjá því lít­andi að slík aðgerð gæfi for­dæmi fyrir önnur sveit­ar­fé­lög. „Al­þingi á að gæta örygg­is­hags­munum þjóð­fé­lags­ins um fram allt ann­að. Við náum aldrei að lenda þessu máli fyrr en Alþingi fer að skoða mál­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None