Segir ráðamenn hafa svikið loforð um að hækka ekki virðisaukaskatt

Stærsta hótelkeðja landsins hótar því að endurskoða uppbyggingu hótela ef virðisaukaskattur verður hækkaður. Stjórnarformaður segir að það muni gera ungu fólki enn erfiðara með að kaupa íbúðir. Íslandshótel hagnaðist um tvo milljarða á sex árum.

Á meðal þeirra hótela sem Íslandshótel á og rekur er Grand hótel í Reykjavík.
Á meðal þeirra hótela sem Íslandshótel á og rekur er Grand hótel í Reykjavík.
Auglýsing



Íslands­hót­el, stærsta hót­el­keðja lands­ins, mun end­ur­skoða bygg­ingu hót­ela ef virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu verður hækk­aður á næsta ári líkt og stendur til. Um er að ræða stækkun Grand Hót­els, bygg­ingu nýs hót­els í Lækj­ar­götu og hót­els á lóð gamla Sjall­ans á Akur­eyri auk þess sem fyr­ir­huguð stækkun Foss­hót­els á Bar­óns­stíg í Reykja­vík verður sett á ís. Þetta segir
Ólafur Torfa­son, stjórn­ar­for­maður og stofn­andi Íslands­hót­ela, í Morg­un­blað­inu í dag. Hann segir enn fremur að núver­andi ráða­menn hafi lofað því fyrir síð­ustu kosn­ingar að virð­is­auka­skatt­ur­inn yrði ekki hækk­að­ur, og nefnir þar sér­stak­lega Guð­laug Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. „Hann [Guð­laugur Þór] full­yrti að það væri engin hækkun á virð­is­auka­skatti fram und­an. Maður horfði blá­eygður í augun á þessum mönnum þegar þeir lof­uðu óbreyttum virð­is­auka. Það er óskilj­an­legt hvernig menn geta gengið svona á bak orða sinna.“

Í blað­inu er einnig haft eftir Ólafi að rekstur  hót­ela geti ekki tekið á sig hækkun virð­is­auka­skatts, en til stendur að færa ferða­þjón­ust­una úr lægra þrepi skatts­ins í það efra. Í dag er lægra skatt­þrepið 11 pró­sent en það efra 24 pró­sent. Til stendur að lækka það efra í 22,5 pró­sent sam­hliða færslu ferða­þjón­ust­unn­ar, stærstu atvinnu­greinar þjóð­ar­inn­ar, í það þrep.

Ólafur varar við því að hæg­ari upp­bygg­ing hót­ela muni setja enn meiri þrýst­ing á íbúða­markað og gera ungu fólki enn erf­ið­ara fyrir að kaupa íbúð­ir.

Auglýsing

Íslands­hótel hagn­að­ist um ríf­lega tvo millj­arða króna á árunum 2010-2016. Mestur var hagn­að­ur­inn á árinu 2015, eða 613 millj­ónir króna. Íslands­hótel hafa ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2016.

Ólafur Torfa­son á 75 pró­sent hlut í keðj­unni. Íslands­hótel er líkt og áður sagði stærsta hót­el­keðja lands­ins og rekur 17 hótel um allt land. Á meðal þeirra eru Grand hótel í Reykja­vík og öll Foss­hótel lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None