Segir Sigurð Inga hafa haft „mörg tækifæri til að mótmæla“

Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra segir að salan á Vífilsstaðalandinu til Garðabæjar sé hið besta mál.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að salan á Víf­ils­staða­land­inu til Garða­bæj­ar, fyrir um 558,6 millj­ónir króna, sé „mjög gott mál“ en stefnt er að upp­bygg­ingu 1.200 til 1.500 íbúða á land­inu og mun rík­is­sjóður fá hlut­deild í sölu á bygg­ing­ar­rétti á svæð­in­u. 

Í færslu á Face­book síðu sinni segir Bene­dikt að það sé sér­kenni­legt að Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi ekki mót­mælt því fyrr, að heim­ild væri í lögum til að selja land­ið. Það hefði hann til dæmis geta gert þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra.

Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur óskað eftir sér­stökum umræðum við Bene­dikt um söl­una á Víf­ils­staða­land­inu til Garða­bæj­ar. Um það til­kynnti hann í eigin Face­book-­færslu í gær.



Sumum finnst að við hefðum átt að selja landið til brask­ara. Það höfðar ekki til mín, þó svo að ein­hverjir aðrir stjórn­mála­menn telji slíkt betri kost, því að við viljum halda i íbúð­ar­verði niðri. End­an­legt sölu­verð kemur ekki í ljós fyrr en við vitum hvert lóða­verð verð­ur. Ríkið fær bæði greiðslu strax og svo hlut­deild í sölu­verði þegar líður verða seld­ar, þannig að samn­ing­ur­inn er mjög sann­gjarn. Mér finnst lík­legt að það verði marg­falt hærra en það sem greitt var bein­t,“ segir Bene­dikt í færslu sinn­i. 

Hann bætir svo við að skipu­lags­valdið í mál­inu sé hjá Garða­bæ. „Loks má geta þess að Garða­bær hef skipu­lags­vald, en landið hefur verið skil­greint sem úti­vist­ar­svæði þannig að við hefðum ekki getað selt öðrum það undir lóð­ir, því bær­inn einn hefur skipu­lags­vald. Þannig að það er ekki nokkur vafi á því að þetta er góð ákvörð­un. Ekk­ert mælir á móti því að þarna verði seinna byggður spít­ali, en þá þurfa menn að taka ákvörðun um það fljót­lega. Nú er búið að ákveða að byggja spít­ali búið Hring­braut og við byrjum á því. Það er merki­legt að Sig­urður Ingi skuli ekki muna að hann hefur margoft sam­þykkt heim­ild í fjár­lögum til þess að selja þetta land. Þannig að hann hefur oft fengið tæki­færi til þess að mót­mæla slíkri sölu, meðal ann­ars sem for­sæt­is­ráð­herra,“ segir Bene­dikt.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None