Lögreglustjóri sagður hafa brotið gegn lögreglumanni

Vinnustaðasálfræðingur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hafi brotið gegn lögreglumanni.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Auglýsing

Hafið er yfir all­an vafa að Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, lög­­­reglu­­stjóri höf­uð­borg­­ar­­svæð­is­ins, hafi brotið gegn lög­­­reglu­­manni með hegðun sinni í garð hans. 

Þetta er nið­ur­staða vinnu­staða­sál­­fræð­ings sem inn­­an­­rík­­is­ráðu­neytið fékk til þess að fara yfir kvört­un lög­­­reglu­­manns­ins, en greint er frá mál­inu á vef RÚV

Að mati vinnu­staða­sál­fræð­ings­ins var ekki um að ræða ein­elti heldur áreiti og sér­tæk til­vik rakin í skýrslu sem skilað var til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Auglýsing

Í frétt RÚV segir að lög­reglu­mað­ur­inn hafi sent ítar­legt bréf til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í ágúst á síð­asta ári þar sem hann kvart­aði undan hegðun Sig­ríðar Bjark­ar. „Í kvörtun­inni kom meðal ann­ars fram að hann og aðrir í fjöl­skyld­unni hefðu þurft að leita sér sál­fræði­að­stoðar vegna fram­göng­u lög­reglu­stjór­ans og að emb­ættið hefði greitt kostn­að­inn vegna þeirrar með­ferð­ar,“ segir í frétt RÚV.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið skip­aði vinnu­staða­sál­fræð­ing í byrjun sept­em­ber í fyrra til að fara yfir málið og ræddi hann bæði við lög­reglu­mann­inn, lög­reglu­stjór­ann og sextán aðra lög­reglu­menn. 

Sál­fræð­ing­ur­inn skil­aði síðan af sér skýrslu um miðjan febr­úar á þessu ári.  Í skýrsl­unni eru til­greind tólf atvik sér­stak­lega, af því er segir í frétt RÚV. Sagði sál­fræð­ing­ur­inn að ekki væri hægt að flokka níu þeirra sem ein­elti og var þeim því vísað frá, en í þremur til­vikum hafi það verið hafið yfir allan vafa að Sig­ríður Björk hefði með fram­göngu sinni brotið gegn lög­reglu­mann­in­um. 

„Í einu þess­ara til­vika skamm­aði Sig­ríður Björk lög­reglu­mann­inn og ávítti hann með hávaða og æsingi og hlust­aði ekki á hann. Annað til­vik sner­ist um að Sig­ríður segði að lög­reglu­mað­ur­inn gæti ekki lengur gegnt stöðu lög­reglu­full­trúa innan mið­lægrar rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar og þriðja til­vikið sneri að ferð á lög­reglu­nám­skeið í Búda­pest ­sem lög­reglu­mað­ur­inn átti að sækja en lög­reglu­stjór­inn ákvað að hann færi ekki,“ segir í umfjöllun RÚV. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None