Styrking krónunnar farin að bíta verulega

Verðmæti útflutnings sjávarafurða dróst verulega saman á fyrstu mánuðum ársins.

Verðmæti sjávarafurða var 35,4% lægra á fyrstu þremur mánuðum ársins í ár en á sama tíma í fyrra.
Verðmæti sjávarafurða var 35,4% lægra á fyrstu þremur mánuðum ársins í ár en á sama tíma í fyrra.
Auglýsing

Nýjar tölur Hag­stofu Ísland um vöru­skipti við útlönd sýna glögg­lega að styrk­ing krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum er farin að bíta veru­lega í útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins. Þannig var útflutn­ingur á sjáv­ar­af­urðum um 34,5 pró­sent af öllum útflutn­ingi á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs og var verð­mæti þess­ara afurða 35,4 pró­sent lægra en á sama tíma í fyrra. Ástæðan er verð­lækkun afurð­ana, að því er segir í frétt Hag­stofu Íslands. Auk þess segir að áhrifin af verk­falli sjó­manna í byrjun árs­ins hafi verið nei­kvæð á verð­mæti, enda lá vinnsla þá niðri og sjó­sókn sömu­leið­is.

Verri staða nú

Á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2017 var verð­mæti vöru­út­flutn­ings 23,9 millj­örðum króna lægra en á sama tíma árið áður.

Iðn­að­ar­vörur voru 58,9% alls útflutn­ings og var verð­mæti þeirra 3,2% lægra en á sama tíma árið áður.

Gengi krón­unnar hefur styrkst mikið á und­an­förnum mán­uð­um. Banda­ríkja­dalur kostar nú 105 krónur og evran 116 krón­ur, en fyrir rúm­lega einu og hálfu ári kost­aði Banda­ríkja­dalur 140 krónur og evran 150 krón­ur. 

Þá hefur geng­is­þróun gagn­vart pund­inu einnig verið nei­kvæð fyrir útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins, en pundið kostar nú 137 krón­ur. Fyrir Brexit kosn­ing­una í júní í fyrra kost­aði pundið hins vegar um 206 krón­ur. Bret­land er stærsta ein­staka við­skipta­land Íslands og er það sér­stak­lega mik­il­vægt við­skipta­svæði sjáv­ar­út­vegs­ins, einkum vegna við­skipta með þorsk.

Auglýsing

Á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2017 var verð­mæti vöru­inn­flutn­ings 12,1 millj­arði króna lægra en á sama tíma­bili árið áður. Aðal­lega dróst inn­flutn­ingur á fjár­fest­inga­vörum, neyslu­vörum og flug­vélum saman en á móti jókst inn­flutn­ingur á elds­neyti og hrá- og rekstr­ar­vörum, að því er segir á vef Hag­stofu Íslands.

Í mars voru fluttar út vörur fyrir 39,5 millj­arða króna og inn fyrir 55,6 millj­arða króna fob (59,4 millj­arða króna cif). Vöru­við­skiptin í mars, reiknuð á fob verð­mæti, voru því óhag­stæð um 16,1 millj­arð króna. Í mars 2016 voru vöru­við­skiptin óhag­stæð um 22,1 millj­arð króna á gengi hvors árs. Á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 108,6 millj­arða króna en inn fyrir 146,1 millj­arð króna fob (156,0 millj­arða króna cif). Halli var því á vöru­við­skiptum við útlönd sem nam 37,5 millj­örðum króna, reiknað á fob verð­mæti. Á sama tíma árið áður voru vöru­við­skiptin óhag­stæð um 25,6 millj­arða á gengi hvors árs, að því er segir í frétt Hag­stof­unn­ar. Vöru­við­skipta­jöfn­uð­ur­inn var því 11,9 millj­örðum króna lak­ari en á sama tíma árið áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None