Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi fyrrverandi DV-mönnum í hag í Sigurplastsmáli

Dómstóllinn birti niðurstöðu sína í morgun og þar segir að dómur Hæstaréttar Íslands í Sigurplastsmálinu sé brot á 10. grein mannréttindasáttmála Evrópu.

Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður var einn þeirra sem hlaut dóm í Hæstarétti í málinu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður var einn þeirra sem hlaut dóm í Hæstarétti í málinu.
Auglýsing

Mann­réttind­ar­dóm­stóll Evr­ópu hefur dæmt í hag þriggja fyrr­ver­andi stjórn­enda DV í Sig­urplasts­mál­inu svo­kall­aða. Dómur dóm­stóls­ins var birtur í morgun og þar kemur fram að hann telur dóm Hæsta­réttar í mál­inu, þar sem menn­irnir þrír voru dæmdir fyrir meið­yrði, stang­ist á við 10. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu, sem fjallar um rétt sér­hvers manns til tján­ing­ar­frelsis og á sá réttur einnig að „ná yfir frelsi til að hafa skoð­an­ir, taka við og skila áfram upp­lýs­ingum og hug­myndum heima og erlendis án afskipta stjórn­valda.“

Reynir Trausta­son, þáver­andi rit­stjóri DV, Ingi Freyr Vil­hjálms­son, þáver­andi frétta­stjóri blaðs­ins, og Jón Trausti Reyn­is­son, sem þá var fram­kvæmda­stjóri DV, voru í Hæsta­rétti árið 2012 dæmdir til að greiða Jóni Snorra Snorra­syni, lektor í við­skipta­fræði og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæk­is­ins Sig­urplasts, miska­bætur vegna umfjöll­unar í blað­inu, auk þess sem ummæli þar voru dæmd dauð og ómerk.

Jón Snorri höfð­aði málið vegna umfjöll­unar DV um meint lög­brot sem talið var að hefðu átt sér stað hjá Sig­urplasti frá árinu 2007 og fram á haustið 2010 þegar það var tekið til gjald­þrota­skipta. Skipta­stjóri Sig­urplasts og Arion banki, stærsti kröfu­hafi fyr­ir­tæk­is­ins, höfðu kært stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins til við­eig­andi emb­ætta fyrir ýmis konar meint lög­brot. Á meðal þeirra voru skatta­laga­brot, veðsvik, skila­svik, umboðs­svik og fjár­drátt. 

Auglýsing

Í leið­ara sem Ingi Freyr skrif­aði um málið eftir að dómur Hæsta­réttar var upp­kveð­inn sagði að heim­ildir DV fyrir því að Sig­urplasts­málið hefði verið kært til lög­regl­unnar byggðu m.a. á skýrslu sem end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið Ernst & Young vann fyrir skipta­stjóra Milestone og munn­legum stað­fest­ingum heim­ild­ar­manna. „Dómur Hæsta­réttar Íslands byggir á þeirri for­sendu að þessar stað­hæf­ingar hafi ekki verið réttar á þeim tíma­punkti sem þær voru sagðar þar sem rann­sókn á Sig­urplasts­mál­inu hafi ekki verið hafin hjá lög­reglu þegar DV birti frétt­ina heldur hafi kær­urnar sem um ræðir verið „til skoð­un­ar“ en ekki rann­sókn­ar. 

Lög­maður Jóns Snorra lagði fram tölvu­póst frá starfs­manni efna­hags­brota­deild­ar­innar þar sem fram kom að kær­urnar hefðu borist og að þær væru „til skoð­un­ar“ en að „ekki“ hafi „verið tekin form­leg ákvörðun um lög­reglu­rann­sókn“.  Ef DV hefði sagt: „Lög­reglan skoðar lekt­or“; „Lektor í við­skipta­fræði flæktur í lög­reglu­skoð­un“, hefði vænt­an­lega ekk­ert verið athuga­vert við umfjöllun blaðs­ins um Sig­urplasts­mál­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None