Samkeppniseftirlitið leitar til almennings

Samkeppniseftirlitið skoðar nú stór viðskipti á fjölmiðlamarkaði og leitar til almennings eftir umsögnum og álitum.

365 vodafone
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur nú til rann­sóknar sam­keppn­is­leg áhrif sam­runa Fjar­skipta hf. (Voda­fo­ne) og 365 miðla hf. (365 miðl­ar). Þar sem um er að ræða sam­runa sem geti varðað almenn­ing miklu hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákveðið að óska opin­ber­lega eftir sjón­ar­miðum almenn­ings og fyr­ir­tækja í þágu rann­sókn­ar­inn­ar. 

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá eft­ir­lit­inu.

Til þess að gefa öllum kost á að kynna sér málið hefur eft­ir­litið enn­fremur birt sam­runa­til­kynn­ingu máls­ins á heima­síðu sinni undir sam­run­skrár.  Er sú til­kynn­ing sem þar er birt án trún­að­ar­upp­lýs­inga. „Sam­hliða hinni opin­beru birt­ingu sam­runa­til­kynn­ing­ar­innar hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið sent beiðni um umsögn og upp­lýs­ingar til fyr­ir­tækja á við­kom­andi mörk­uð­um. Auk þess hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið óskað umsagnar frá opin­berum stofn­unum sem ann­ast eft­ir­lit sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla og fjar­skipti. Er þess óskað að sjón­ar­mið og gögn ber­ist eft­ir­lit­inu eigi síðar en 26. maí nk.,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Full­nægj­andi sam­runa­til­kynn­ing barst Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu þann 27. apríl 2017. Frá og með 28. apríl byrj­uðu frestir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til að rann­saka sam­run­ann að líða skv. 17. gr. d sam­keppn­islaga, sbr. 9. gr. reglna um til­kynn­ingu og máls­með­ferð í sam­runa­mál­um. Frá þeim degi hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið 25 virkra daga til að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til frek­ari rann­sóknar á sam­keppn­is­legum áhrifum sam­run­ans. Reyn­ist svo vera, hefur eft­ir­litið 70 virka daga til við­bótar til að taka ákvörðun í mál­inu.

Í mars síð­ast­liðnum var til­kynnt um kaup Voda­fone á 365, að und­an­skildu Frétta­blað­inu. Kaup­verðið er allt að 7,8 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent