Búið að margborga sig að kaupa skattagögnin

Kröfur vegna endurálagningar sem urðu til vegna upplýsinga úr skattagögnum sem ríkið keypti hefur margborgað sig.

Peningar
Auglýsing

Kröfur vegna end­­ur­á­lagn­ingar á grund­velli Pana­ma­­gagn­anna eru nú orðnar umtals­vert hærri en kostn­að­­ur­inn við kaupin á gögn­un­­um.

Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhanns­­sonar fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­­spurn á Alþingi sem birt var í gær. Eins og fram hefur kom­ið, keypt Skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri gögn um eignir Íslend­inga í skatta­­skjólum fyrir 37 millj­­ónir króna.

Skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri hefur hins vegar nú þegar krafið fjóra ein­stak­l­ing um 82 millj­­ónir eða næstum þre­falda þá upp­­hæði sem kost­aði að kaupa gögn­in.

Auglýsing

Alls koma 349 Íslend­ingar og 61 aflands­­fé­lög með íslenska kenn­i­­tölu fyrir í gögnum skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra. Sam­tals hafa 34 mál verið tekin til for­m­­legrar rann­­sóknar hjá skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra. Af þeim málum er tekin hafa verið til rann­­sóknar er rann­­sókn lokið í þremur mál­­um. Tveimur af þeim hefur verið vísað til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara en ákvörðun hefur verið tekin um að gera kröfu um sekt hjá yfir­­skatta­­nefnd í þriðja mál­inu. Rann­­sóknir í sjö málum eru á loka­­stigi.

Fyr­ir­­spurnin til efna­hags- og fjár­­­mála­ráð­herra, sem kom frá Bjarkeyju Olsen Gunn­­ar­s­dótt­­ur, fer hér á eftir ásamt svörum ráð­herra:

1. Hve margir aðilar með íslenska kenni­tölu koma fyrir í gögnum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti sum­arið 2015 og gjarnan eru kennd við Pana­ma?

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra er fjöldi ein­stak­linga með íslenska kenni­tölu, sem fyrir koma í þeim gögnum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti sum­arið 2015, sam­tals 349. Fjöldi aflands­fé­laga með íslenska kenni­tölu, sem fyrir koma í keyptu gögn­un­um, er 61.

2. Hversu mörg mál hafa verið tekin til form­legrar rann­sóknar á grund­velli upp­lýs­inga úr gögn­unum og hve mörg þeirra hafa leitt til end­ur­á­lagn­ingar eða ákæru?

Alls hafa 34 mál verið tekin til form­legrar rann­sóknar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra vegna gruns um skatta­laga­brot sem tengj­ast hinum svo­nefndu Pana­ma­gögn­um. Af þeim voru 27 tekin til rann­sóknar eftir að skatt­rann­sókn­ar­stjóri festi kaup á umræddum gögn­um. Eitt mál hefur verið tekið til rann­sóknar í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar í tengslum við Panama­lek­ann. Við rann­sóknir skatt­rann­sókn­ar­stjóra á þessum málum hefur vaknað grunur um skatta­laga­brot í sex öðrum mál­um. Af þeim málum er tekin hafa verið til rann­sóknar er rann­sókn lokið í þremur mál­um. Tveimur af þeim hefur verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara en ákvörðun hefur verið tekin um að gera kröfu um sekt hjá yfir­skatta­nefnd í þriðja mál­inu. Rann­sóknir í sjö málum eru á loka­stigi. Rann­sókn átta mála hefur verið felld nið­ur, m.a. vegna þess að grunur hefur ekki reynst á rökum reistur eða ekki hefur reynst unnt að upp­lýsa mál með full­nægj­andi hætti. End­ur­á­lagning hefur enn ekki átt sér stað í þeim málum sem rann­sókn er lokið í og ekki hefur verið gefin út ákæra í þeim málum sem send hafa verið hér­aðs­sak­sókn­ara.

Þau mál, sem var að finna í keyptu gögn­unum og ekki voru tekin til form­legrar rann­sóknar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra (SR­S), voru fram­send til rík­is­skatt­stjóra í októ­ber 2015 með vísan til þess að grein­ing SRS á umræddum gögnum benti til þess að skatt­skil aðila gætu verið athug­un­ar­verð, án þess þó að sýnt þætti að um refsi­verð und­an­skot væri að ræða. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra hafa þegar verið send út bréf til 229 ein­stak­linga í tengslum við hin keyptu gögn. Til við­bótar þeim sem hafa fengið bréf hafa fleiri íslenskir aðilar sem fram komu í keyptu gögn­unum hlotið skoðun hjá emb­ætt­inu án þess að form­legar bréfa­skriftir hafi nú þegar átt sér stað.

3. Hversu háum fjár­hæðum nemur end­ur­á­lagn­ing opin­berra gjalda á grund­velli gagn­anna, ann­ars vegar í heild og hins vegar eftir teg­undum opin­berra gjalda?

Eins og fram kemur í svari við 1. lið fyr­ir­spurn­ar­innar þá er rann­sókn lokið í þremur málum hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra, en end­ur­á­lagn­ing í þeim málum hefur ekki átt sér stað. Önnur mál, sem eru til með­ferðar hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra, eru enn í rann­sókn.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra nemur end­ur­á­lagn­ing opin­berra gjalda á grund­velli keyptu gagn­anna 81.951.171. kr. Að baki þeirri fjár­hæð eru fjórir ein­stak­ling­ar. Þar af nam auð­legð­ar­skattur 80.997.139 kr. og tekju­skattur 954.032 kr.

4. Hversu háum fjár­hæðum nema sektir og önnur við­ur­lög í umræddum mál­um?

Eins og áður er komið fram hefur tveimur málum skatt­rann­sókn­ar­stjóra verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara til refsi­með­ferð­ar, jafn­framt því að tekin hefur verið ákvörðun um að gera kröfu um sekt hjá yfir­skatta­nefnd í þriðja mál­inu. Ákvörðun um refsi­með­ferð í málum sem enn eru til rann­sóknar verður tekin í fram­haldi rann­sókn­ar­loka.

Rík­is­skatt­stjóri hefur ekki heim­ildir til að beita sektum en hefur þó laga­heim­ildir til að beita 25% álagi skv. 108. gr. laga nr. 90/2003, um tekju­skatt. Var þeirri heim­ild beitt í nefndum mál­um, sbr. svar við 3. lið fyr­ir­spurn­ar­inn­ar.

5. Hve margir ein­stak­lingar ann­ars vegar og lög­að­ilar hins vegar hafa sætt end­ur­á­lagn­ingu á grund­velli gagn­anna og hvernig skipt­ast fjár­hæðir end­ur­á­lagn­ingar og sekta og ann­arra við­ur­laga milli ein­stak­linga, félaga í rekstri, eign­ar­halds­fé­laga og ann­arra félags­for­ma?

Til svars við þessum lið fyr­ir­spurn­ar­innar er vísað til svars við 2.–4. lið.

6. Í hve mörgum til­fellum og fyrir hve stórum hluta krafna vegna end­ur­á­lagn­ingar hefur rík­is­sjóður trygg veð?

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur farið fram á kyrr­setn­ingu eigna vegna rann­sókna í þremur af þeim málum sem hafa verið til rann­sókn­ar. Toll­stjóri ann­ast slíka kyrr­setn­ingu að beiðni skatt­rann­sókn­ar­stjóra. End­ur­á­lagn­ing rík­is­skatt­stjóra fer án frek­ari íhlut­unar inn í inn­heimtu­kerfi rík­is­ins þar sem nauð­syn­legum inn­heimtu­að­ferðum er beitt sé umrædd end­ur­á­lagn­ing ekki greidd.

7. Hve mörgum málum sem urðu til vegna upp­lýs­inga úr Panama­skjöl­unum er enn ólokið og hversu háum fjár­hæðum má gera ráð fyrir að end­ur­á­lagn­ing geti numið?

Af þeim málum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri tók til með­ferðar eru eins og fram hefur komið rann­sóknir í sjö málum á loka­stigi og rann­sóknir í 16 málum eru enn í gangi, eða sam­tals í 23 mál­um. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra er úti­lokað að segja með nákvæmni hversu háar fjár­hæðir er um að ræða í óloknum mál­um, en í ein­stökum málum sem eru til með­ferðar nema und­an­dregnir skatt­stofnar allt að nokkrum hund­ruðum millj­óna króna. Þá er fyr­ir­séð að fleiri mál verði tekin til rann­sóknar á næstu mán­uð­um, þar sem grunur liggur nú fyrir um skatta­laga­brot, en rann­sókn er ekki form­lega haf­in.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra er í gangi úrvinnsla á fjöl­mörgum mál­um. Á grund­velli mála sem langt eru komin þá má áætla að fjár­hæðir gjalda vegna þessa mála­flokks geti þre­fald­ast á næstu mán­uðum frá því sem áður var nefnt. Þá er rétt að taka fram að eftir að vinna við þennan mála­flokk hófst hafa borist sex skatt­er­indi þar sem ein­stak­ling­ar, ýmist per­sónu­lega eða vegna félaga á þeirra veg­um, hafa óskað eftir end­ur­upp­töku á áður inn­sendum skatt­fram­töl­um. Um er að ræða fjár­muni og/eða fjár­magnstekjur erlendis sem áður hafði ekki verið gerð grein fyrir á fram­töl­um. Hækkun á auð­legð­ar­skatti vegna þessa hefur nú þegar numið 36.400.647 kr., tekju­skatti alls 25.780.957 kr. og fjár­magnstekju­skatti 6.179.803 kr. Jafn­framt eru óaf­greidd sjö skatt­er­indi af sama meiði sem leiða til við­bót­ar­skatt­lagn­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent