Gjald á fríblöð í farvatninu

Umhverfis- og auðlindaráðherra vill leggja umhverfisgjald verði lagt á fríblöð og frípóst sem kemur óboðinn inn á heimili landsmanna. Skattgreiðendur bera tugmilljóna króna óbeinan kostnað vegna urðurnar á slíku sorpi árlega.

7DM_0371_raw_2095.JPG
Auglýsing

Björt Ólafs­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, vill að umhverf­is­gjald verði lagt á þá sem prenta frí­blöð eða frí­póst sem dreift er inn á heim­ili lands­manna án þess að beðið sé sér­stak­lega um það. Þetta kemur fram í svari hennar við i fyr­ir­spurn á Alþingi um fjöl­póst sem birt var í gær.

Í fyr­ir­spurn­inni var Björt meðal ann­ars spurð hvort hún teldi eðli­legt að við­tak­endur fjöl­pósts beri kostnað af förgun þess papp­írssorps sem af honum leið­ir? Í svari sínu sagði ráð­herrann: „Nei, ráð­herra telur það ekki eðli­legt að við­tak­endur fjöl­pósts beri kostnað af förgun þess papp­írssorps sem af honum leið­ir. Í sam­ræmi við meng­un­ar­bóta­regl­una væri eðli­legra að fram­leið­endur fjöl­pósts bæru kostnað af úrvinnslu hans, þ.e. að koma honum í end­ur­vinnslu eða end­ur­nýt­ingu. Væri settur hag­rænn hvati til end­ur­vinnslu fjöl­pósts, t.d. úrvinnslu­gjald, yki það magn þess sem færi til end­ur­vinnslu en óljóst er hvort það drægi úr magni fjöl­pósts sem mynd­ast.“

Björt segir enn fremur að engin umhverf­is­gjöld séu nú lögð á fjöl­póst hér­lendis en að hún hafi hug á að inn­leiða meng­un­ar­bóta­regl­una í auknum mæli vegna fjöl­pósts og sé það mál til skoð­un­ar. Umhverf­is­stofnun hafi hins vegar ekki hald­bærar upp­lýs­ingar um magn fjöl­pósts og frí­blaða sem hent sé og hafi því ekki reiknað út end­ur­vinnslu­hlut­fall þess.

Auglýsing

Tug­millj­óna kostn­aður

Kjarn­inn fjall­aði um kostnað sem fellur til vegna urð­unar á dag­blaða- og tíma­rita­pappír á ári í frétt sem birt­ist í mars 2014. Þar kom fram að sam­kvæmt svörum frá SORPU kost­aði urðun á dag­blaða- og tíma­rita­pappír allt að 45 millj­ónir króna á ári þrátt fyrir blát­unnu, grennd­ar­gáma og end­ur­vinnslu­stöðv­ar. Ári síðar mat SORPA kostn­að­inn allt að 30 millj­ónir króna á ári.

Þessi kostn­aður lendir beint á skatt­greið­endum á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu sem eiga og reka SORPU. Sveit­ar­fé­lögin nið­­ur­greiða því útgáfu dag­­blaða og tíma­­rita um þessa upp­­hæð á ári hverju.

Upp­i­­­staðan í papp­írs­rusl­inu sem þarf að urða eru frí­blöð eða frídreif­ing á öðrum dag­blöð­um. Langstærsta frí­­blað lands­ins er Frétta­­blað­ið, sem er dreift frítt í 90 þús­und ein­­tökum sex daga vik­unn­­ar. Morg­un­blaðið hefur auk þess stór­aukið frídreif­ingu sína á und­an­förnum árum.

Lestur dag­blaða hríð­fellur

Gera má ráð fyrir að sú upp­hæð sem skatt­greið­endur greiddu óbeint fyrir urðun á frí­blöðum og tíma­ritum hafi hækkað umtals­vert á árinu 2016 þegar Frétta­tím­inn, sem kom út í 83 þús­und ein­tök­um,  fjölg­aði útgáfu­dögum sínum fyrst úr einum í tvo á viku, og svo úr tveimur í þrjá. Ruslið sem varð til vegna Frétta­tím­ans tvö­fald­að­ist því hið minnsta.

Frétta­tím­inn fór hins vegar í rekstr­ar­þrot í byrjun apríl síð­ast­lið­ins og hefur ekki komið út síðan þá. Hverfi hann alfarið af frí­blaða­mark­aði mun það magn af frí­blaða­pappír sem þarf að end­ur­vinna eða urða óhjá­kvæmi­lega drag­ast sam­an.

Frétta­tím­inn var með 31,5 pró­sent með­al­lestur á tölu­blað sam­kvæmt prent­miðla­mæl­ingum Gallup. Brott­hvarf hans af mark­aði hefur hins vegar ekki aukið lestur neinna aðra prent­miðla. Þvert á móti hefur lestur þeirra haldið áfram að drag­ast sam­an.

Lestur á frí­blað­inu Frétta­blað­inu fór t.d. í fyrsta sinn undir 45 pró­sent í apríl síð­ast­liðn­um. Hjá lands­mönnum á ald­urs­bil­inu 18-49 ára er lest­ur­inn enn minni, eða 36,9 pró­sent. Þegar best lét árið 2010 lásu um 64 pró­­sent lands­­manna Frétta­­blaðið og hlut­­fall les­enda undir fimm­tugu var nán­­ast það sama, eða 63,75 pró­­sent.

Lest­ur Morg­un­­blaðs­ins mælist nú 25,8 pró­­sent, sem er minnsta lestri sem ­blaðið hefur nokkru sinni mælst með. Til sam­an­burðar má nefna að í maí 2006 lásu 54,3 pró­sent Morg­un­blað­ið. Les­endur Morg­un­blaðs­ins eru því rúm­lega helm­ingi færri en þeir voru fyrir um ára­tug síð­an. Hjá ald­urs­hópnum undir 50 hefur staðan versnað enn meira. Þar lesa ein­ungis 15,2 pró­sent blað­ið.

DV til­kynnti nýverið að það hefði fækkað útgáfu­dögum úr tveimur í einn vegna rekstr­ar­vand­ræða. Blaðið kemur nú ein­ungis út um helg­ar. Lestur þess hefur hald­ist mjög lít­ill á und­an­förnum árum og mæld­ist 7,2 pró­sent í apr­íl, sem er við lægstu mörk sem hann hefur mælst. Ein­ungis 5,1 pró­sent Íslend­inga undir 50 ára lesa DV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent