Tekjur ríkisins vegna gjalda á bíla og eldsneyti voru 44 milljarðar í fyrra

Ríkið fékk 44 miljarða króna vegna vöru- og kolefnisgjalda á eldsneyti, bifreiðagjalds og vörugjalda af ökutækjum í fyrra. Heildarframlag ríkissjóðs til Vegagerðarinnar var hins vegar 25,1 milljarður króna, eða 57 prósent af ofangreindum tekjum ríkisins.

Þjóðvegur 1
Auglýsing

Tekjur rík­is­sjóðs af vöru- og kolefn­is­gjöldum á elds­neyti, bif­reiða­gjaldi og vöru­gjöldum af öku­tækjum hækk­uðu um átta millj­arða króna á milli áranna 2013 og 2016 á verð­lagi hvers árs. Þær voru um 36 millj­arðar króna árið 2013 en um 44 millj­arðar króna í fyrra. Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhann­es­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyrir­spurn Lilju Raf­n­eyju Magn­ús­dóttur, þing­manns Vinstri grænna, um mark­aðar tekjur til vega­mála.

Ekki eru allar tekjur rík­is­sjóðs af vöru- og kolefn­is­gjöldum á elds­neyti, bif­reið­ar­gjaldi og vöru­gjöldum mark­aðar tekjur sem eiga að renna til vega­gerð­ar. Það þýðir að ein­ungis hluti þeirra fer til Vega­gerð­ar­innar sem nýtir það fjár­magn m.a. í við­hald og nýfram­kvæmd­ir. Í svari Bene­dikts kemur fram að mark­aðar tekjur til Vega­gerð­ar­innar á árinu 2013 hafi verið um 15,1 millj­arður króna en um 17,8 millj­arðar króna í fyrra. Það þýðir að um 40 pró­sent þeirra tekna sem ríkið aflar af með vöru- og kolefn­is­gjöldum á elds­neyti, bif­reið­ar­gjaldi og vöru­gjöldum séu mark­aðar tekjur sem renna til vega­gerð­ar. Til við­bótar kemur árlegt fram­lag úr rík­is­sjóði til Vega­gerð­ar­inn­ar. Það var í fyrra 7,4 millj­arðar króna, sem er um þremur millj­örðum króna meira en það var í krónum talið árið 2013. Sam­tals voru því fjár­fram­lög rík­is­sjóðs til Vega­gerð­ar­innar á árinu 2016 – þ.e. beint fram­lag og mark­aðar tekjur – 25,1 millj­arðar króna í fyrra. Það þýðir að tæp­lega sex af hverjum tíu krónum sem renna í rík­is­kass­ann vegna þeirra tekna sem ríkið aflar með vöru- og kolefn­is­gjöldum á elds­neyti, bif­reið­ar­gjaldi og vöru­gjöldum renna til vega­gerð­ar. Upp­hæðin hefur vaxið hratt á síð­ustu árum. Heild­ar­fram­lagið var 18,6 millj­arðar króna árið 2013.

Sam­kvæmt svari ráð­herra er þeim tekjum sem renna til Vega­gerð­ar­innar varið til „ almenns rekst­urs, við­halds og stofn­kostn­aðar Vega­gerð­ar­inn­ar“. Á árinu 2016 fóru 9,4 millj­arðar króna í almennan rekstur Vega­gerð­ar­inn­ar, 6,1 millj­arður króna í við­hald, 11,1 millj­arðar króna í stofn­kostnað og 10,3 millj­arðar króna í fram­kvæmd­ir. Um 766 millj­ónir króna fóru í „ann­að“.

Auglýsing

Gríð­ar­leg upp­söfnuð þörf

Fjár­fest­ing í vega­kerf­inu hér­lendis hefur ekki fylgt hefð­bund­inni þörf né aukn­ingu á álagi á und­an­förnum árum. Sem dæmi má nefna að árið 2015 var fjár­­­­­­­fest­ing í vegum og brúm helm­ingi minni en hún var árið 1995. Vinstri stjórnin sem sat við völd 2009-2013 taldi að það væru ekki til pen­ingar til að fjár­­­festa í vega­­kerf­inu og sú sem sat á síð­­asta kjör­­tíma­bili taldi ekki nauð­­syn­­legt að for­­gangs­raða í slíkar fjár­­­fest­­ar.

Afleið­ingin er sú, sam­­kvæmt úttekt Grein­ing­­ar­­deildar Arion banka frá því seint á síð­asta ári, að upp­­­söfnuð þörf á fjár­­­fest­ingum í vega­­kerf­inu sé yfir 23 millj­­arðar króna vegna tíma­bils­ins 2011-2015. Í ljósi þess að of lítið var fjár­­­fest í fyrra líka má ætla að sú tala sé komin nær 30 millj­­örðum króna nú.

Arion banki reikn­aði sína áætl­­uðu upp­­­söfn­uðu fjár­­­fest­inga­þörf út frá fjölgun bif­­reiða sem nota íslenska vega­­kerf­ið. Þar skiptir aukn­ing ferða­manna mestu máli, en þeim hefur fjölgað úr 500 þús­und í um 2,3 millj­ónir á örfáum árum. Þeirri aukn­ingu hefur fylgt stór­aukið álag á vega­kerf­ið. Árið 2005 voru rétt tæp­­­lega 3.900 bíla­­­leig­u­bílar skráðir á Íslandi. Á næstu tíu árum fimm­fald­að­ist hann. Þá eru ótal­inn allur sá fjöldi stærri fólks­­­flutn­ings­bif­­­reiða sem bæst hafa við íslenska bíla­­­flot­ann vegna fjölg­unar ferða­­­manna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent