Ógagnsætt ferli þegar ráðuneyti völdu fyrrverandi þingmenn sem ráðgjafa

Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við kaup ýmissa ráðuneyta á sérfræðiþjónustu í nýrri stjórnsýsluúttekt.

Ríkisendurskoðun nefnir sérstaklega viðskipti Fjármálaráðuneytisins við lögmannstofuna Juris, en þeim var komið á með tölvupósti.
Ríkisendurskoðun nefnir sérstaklega viðskipti Fjármálaráðuneytisins við lögmannstofuna Juris, en þeim var komið á með tölvupósti.
Auglýsing

Í stjórn­sýslu­út­tekt ­Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, Kaup ráðu­neyta á sér­fræði­þjón­ustu, kem­ur fram að kaup á sér­fræði­þjón­ustu hafi í mörgum til­fellum „ekki verið í fullu ­sam­ræmi við lög, reglur og leið­bein­ingar stjórn­valda” í ráðu­neyt­un­um. Ekki vor­u ­gerðir lög­gildir samn­ingar um þjón­ust­una, val á verk­sala var oft ó­gagn­sætt og ramma­samn­ingar van­nýtt­ir. Enn fremur virtu ráðu­neytin ekki alltaf ­upp­boðs­skyldu á kaupum á stórum verk­efn­um.

Á meðal þeirra atvika sem Ríki­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við er ógagn­sæi í vali ýmissa ráðu­neyta á ráð­gjafa, þar á með­al Siv Frið­leifs­dóttur fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neyt­ið, Björg­vin G. Sig­urðs­son fyrir mennta­mála­ráðu­neytið og Tryggva Þór Her­berts­son fyrir fjár­mála­ráðu­neyt­ið. Öll þrjú eru fyrr­ver­andi þing­menn.

Fjár­mála­ráðu­neyt­ið ­stærsti kaup­and­inn

Á árunum 2013-2015 keyptu ráðu­neyt­in ­sér­fræði­þjón­ustu fyrir u.þ.b. 2,5 millj­arða króna, en árlegur kostn­aður hækk­aði stöðugt úr 700 millj­ónum upp í millj­arð á tíma­bil­inu. Aðkeypt sér­fræði­þjón­usta ráðu­neyta fellur að mestu leyt­i undir þrjá flokka: Lög­fræði­þjón­ustu, aðra sér­fræði­þjón­ustu og rekstr­ar­ráð­gjöf. Mynd að neðan sýnir hvernig kaup á sér­fræði­þjón­ustu dreifast eftir ráðu­neyt­un­um, en fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið eyddi lang­mestu í aðkeyptri sér­fræði­þjón­ustu á tíma­bil­inu.

Kaup ráðuneyta á sérfræðiþjónustu. Heimild: Ríkisendurskoðun

Í úttekt­inni kemur fram að við ­kaupum á sér­fræði­verk­efnum hafi ráðu­neytin oft aðeins haft sam­band við einn að­ila sem gjarnan hafi sinnt verk­efnum fyrir ráðu­neytið áður. Slík vinnu­brögð ­séu ekki í sam­ræmi við ákvæði laga um jafn­ræði og gagn­sæi.

Ekk­ert ráðu­neyt­anna fór í útboð eða örút­boð inn­an­ ramma­samn­inga á tíma­bil­inu vegna kaupa á sér­fræði­þjón­ustu þar sem þau telja það vera of dýrt og tíma­frekt fyrir verk­efn­in, sem oft­ast væru lítil og sér­hæfð. Auk þess töldu ráðu­neytin sig oft ekki hafa tíma eða mann­skap til að kynna sér­ ít­ar­lega ramma­samn­inga fyrir hvert verk­efni. Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við þá rök­semd­ar­færslu og telur aukna notkun heim­ilda innan ramma­samn­ings­ins muni leiða til auk­innar hag­kvæmni við kaup á þjón­ustu.

Þar sem ramma­samn­ingur hafi ekki verið end­ur­nýj­aður árið 2013 hvetur Rík­is­end­ur­skoðun inn­kaupa­stofnun rík­is­ins, Rík­is­kaup, á að skýra verk­ferla um kaup opin­berra aðila á lög­fræði­þjón­ustu, hvort sem það er með­ nýjum ramma­samn­ingi eða með öðrum hætti.

Auglýsing

Meðal þeirra athuga­semda sem ­Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við eru:

  • Kaup ­sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins á lög­fræði­að­stoð Bonafide-lög­manna og ­Lex ehf. ­vegna end­ur­skoð­unar á lög­gjöf um ­fisk­veiði­stjórn­un, en þau voru utan ramma­samn­inga. 

  • Kaup fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins á lög­fræði­þjón­ustu Juris slf. vegna aðstoðar í þjóð­lendu­mál­um, en samn­ingur um þjón­ust­una er ekki í sam­ræmi við leið­bein­ingar sem ráðu­neytið sjálft beini til ann­arra. 

  • Kaup vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á lög­fræði­þjón­ustu Láru Áslaugu Sverr­is­dóttur lög­mann til að vinna að úrskurðum fyrir kæru­nefnd greiðslu­að­lög­un­ar­mála. Eng­inn samn­ingur var gerður fyrir þjón­ust­una, en hún kost­aði 41,4 millj­ón­ir króna. 

  • Kaup for­sæt­is­ráðu­neyt­is og fjár­mála­ráðu­neytis á ráð­gjöf fyr­ir­tæk­is­ins Ana­lyt­ica á­hættu- og fjár­fest­inga­ráð­gjöf ehf. ­vegna þjóð­hags­legra áhrifa höf­uð­stólslækk­unar verð­tryggðra fast­eigna­lána og af­náms verð­trygg­ing­ar. Þótt Ana­lyt­ica hafi verið innan ramma­samn­inga vor­u þeir ekki nýttir við kaup­in.     

  • Kaup vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á þjón­ustu Ráða­bót­ar ehf. ­vegna könn­unar á upp­lýs­inga­miðl­un milli sveit­ar­fé­laga vegna veit­ingu rétt­inda til ein­stak­linga. Hvorki var gerð­ur­ ­samn­ingur né kostn­að­ar­á­ætlun og ekki var ákveðið um gjald þjón­ust­unn­ar. 

  • Ógagn­sæ­i í vali ýmissa ráðu­neyta á ráð­gjafa, þar á meðal Siv Frið­leifs­dótt­ur ­fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neyt­ið, Björg­vin G. ­Sig­urðs­son fyrir mennta­mála­ráðu­neytið og Tryggva Þór Her­berts­son fyr­ir­ fjár­mála­ráðu­neyt­ið.

Við­skiptum komið á með tölvu­pósti

Lög­manns­stofan Juris var tekin til sér­stakrar skoð­unar í út­tekt­inni vegna umfangs­mik­illa við­skipta við fjár­mála-og efna­hags­ráðu­neyt­ið. Á tíma­bil­in­u 2013-2015 greiddi ráðu­neytið stof­unni alls 107 millj­ónir króna, þar af 92 millj­ónir vegna mála um eign­ar­hald á þjóð­lend­um. Sam­kvæmt ráðu­neyt­inu á samn­ing­ur­inn um þjóð­lendu­mál að hafa kom­ist á með tölvu­pósts­sam­skiptum starfs­manna ráðu­neyt­is­ins og lög­manns­stof­unnar árið 2006. Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við hvernig staðið hafi verið að samn­ings­gerð og kaupum á þessu verk­efni og ráð­leggur ráðu­neyt­inu að ­gera form­legan samn­ing. Fjár­mála­ráðu­neytið fari með mál­efni opin­berra inn­kaupa og ættu vinnu­brögð þess í þeim málum að vera til fyr­ir­mynd­ar.

Í kjöl­far úttekt­ar­innar kom fram yfir­lýs­ing frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu um að samn­ingur við lög­manns­stof­una Juris sé í end­ur­skoð­un. Ráðu­neytið tek­ur undir ábend­ingu Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, en telur þó að hag­kvæmni, gæði þjón­ust­u, ­jafn­ræði selj­enda, gagn­sæi og verð­sam­an­burður hafi verið tryggður í umrædd­um við­skiptum við Juris.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent