Þarf ekki lengur starfsleyfi fyrir heimagistingu

Frá 1. júlí þarf ekki lengur að fá starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd til að starfrækja heimagistingu í 90 daga eða minna. Nóg verður að skrá fasteignir hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

img_4566_raw_0710130531_10191467436_o.jpg
Auglýsing

Búið er að fella niður kröfu um starfs­leyfi frá heil­brigð­is­nefnd þegar fólk leigir út íbúðir eða sum­ar­bú­staði í heimagist­ingu. Breyt­ingin tekur gildi 1. júlí næst­kom­andi, og þá þarf aðeins að skrá fast­eign­ina hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða á mið­lægu vef­svæði sé það fyrir hendi, og greiða átta þús­und krónur fyrir það. 

Breyt­ingin lýtur ein­göngu að heimagist­ingu, sem er gist­ing á lög­heim­ili ein­stak­lings eða einni annarri fast­eign sem hann hefur per­sónu­leg not af, til dæmis sum­ar­bú­stað. Hámarks leigu­tími eru sam­tals 90 dagar á ári. 

Þeir sem vilja leigja út heim­ili sitt í 90 daga eða skemur þurfa því aðeins að skrá fast­eign­ina í stað þess að sækja um starfs­leyfi. Áfram þarf að greiða skatta af leigu­tekj­unum eins og áður. 

Auglýsing

Ekki er búið að birta lögin á vef Alþing­is, en í frum­varp­inu sem Björt Ólafs­dóttir umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra lagði fram í mars síð­ast­liðnum kemur fram að það sé stefna rík­is­stjórn­ar­innar að bæta við­mót og aðgengi að stjórn­sýslu og í því ljósi sé mik­il­vægt að end­ur­skoða og leggja mat á þörf­ina fyrir að til­tekin starf­semi sé háð starfs­leyfi. Því sé lagt til að dregið verði úr vægi starfs­leyf­is­skyldu og miðað við að ein­ungis verði gerð krafa um að starf­semi sé starfs­leyf­is­skyld þegar þess er þörf með til­liti til umfangs og eðlis starf­sem­inn­ar. Því hafi ráð­herra heim­ild til að kveða á um að ákveðin starf­semi sé háð skrán­ing­ar­skyldu frekar en starfs­leyf­is­skyld­u. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent