VG: Uppnám millidómsstigs er algjört og það er á ábyrgð ráðherra og ríkisstjórnar

Formaður og þingflokksformaður Vinstri grænna segja að svo gæti farið að Landsréttur yrði að glíma við vantraust og skort á trúverðugleika um árabil vegna framgöngu dómsmálaráðherra.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra hefur þver­brotið það ferli sáttar sem Ólöf Nor­dal, fyr­ir­renn­ari hennar í starfi, hafði leitt fram varð­andi lagaum­gjörð og inn­tak nýs milli­dóm­stigs. Hún hefur gengið á skjön við þann anda sem ríkti á fyrri stigum máls­ins. „Upp­nám milli­dóm­stigs­ins er nú algjört, á ábyrgð dóms­mála­ráð­herr­ans og rík­is­stjórn­ar­innar allr­ar. Enn er ekki séð fyrir end­ann á mála­lyktum þessa og gæti svo farið að Lands­réttur yrði að glíma við van­traust og skort á trú­verð­ug­leika um ára­bil.“ Þetta segja Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, og Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður flokks­ins, í grein sem þær skrifa saman á vef Vinstri grænna.

Í grein­inni er fjallað um nýlið­inn þing­vetur með harð­orðum hætti. Á meðal þess sem þær taka á er það sem Katrín og Svan­dís kalla „loka­afrek rík­is­stjórn­ar­inn­ar“, skipan fimmtán nýrra dóm­ara við nýtt milli­dóms­stig, Lands­rétt. Í grein þeirra seg­ir: „Dóms­mála­ráð­herra vék þar veru­lega frá til­lögu dóm­nefndar og færði fjóra aðila sem metnir voru í hópi fimmtán hæf­ustu umsækj­enda niður og færði upp fjóra aðra, upp­haf­lega með þeim rökum að hún vildi meta dóm­ara­reynslu þyngra en dóm­nefnd hefði gert en í þeim rök­stuðn­ingi sem síðar var lagður fram vís­aði ráð­herr­ann einnig til kynja­sjón­ar­miða og hefur í fjöl­miðlum bent á for­menn stjórn­mála­flokk­anna sem ábyrgð­ar­að­ila fyrir þeim sjón­ar­mið­u­m.“

Grafal­var­legt í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi

Katrín og Svan­dís segja að Vinstri græn hafi haldið til haga þeim sjón­ar­miðum að sér­stakt til­lit yrði tekið til jafn­rétt­islaga við skipan dóm­ara í Lands­rétt. Þau lög byggi hins vegar á því að umsækj­endur séu jafn hæf­ir. Dóms­mála­ráð­herra hafi ekki fært nægj­an­leg rök fyrir því að þannig hafi verið hvað varðar þær breyt­ingar á til­nefn­ing­ar­list­anum sem hún gerði. „Því ber að halda til haga að ráð­herr­ann einn ber ábyrgð á sinni til­lögu og getur ekki vísað á aðra í því. Minni­hlut­inn óskaði eftir því að mál­inu yrði frestað og ráð­herra og Alþingi fengju auk­inn tíma til að fara yfir þetta mik­il­væga mál. Við því var ekki orðið og neytti meiri­hlut­inn því afls­munar sinna til að sam­þykkja fimmtán nýja dóm­ara við Lands­rétt í bull­andi ágrein­ingi þar sem aug­ljós­lega hafði ekki gef­ist tími til að fara yfir málið með full­nægj­andi hætt­i.“

Auglýsing

Katrín og Svan­dís segja það grafal­var­legt í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi að svo naumur meiri­hluti skuli fara fram með slíkum hætti þegar um er að ræða eina grein hins opin­bera valds, dóms­vald­ið, og skipan þess. „Í tíð fyrri ráð­herra mála­flokks­ins var mikil áhersla á að leiða fram lagaum­gjörð og inn­tak nýs dóm­stigs í sátt. Nýr ráð­herra hefur nú þver­brotið það ferli, gengið fram á skjön við þann anda sem ríkti á fyrri stigum máls­ins. Upp­nám milli­dóm­stigs­ins er nú algjört, á ábyrgð dóms­mála­ráð­herr­ans og rík­is­stjórn­ar­innar allr­ar. Enn er ekki séð fyrir end­ann á mála­lyktum þessa og gæti svo farið að Lands­réttur yrði að glíma við van­traust og skort á trú­verð­ug­leika um ára­bil.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent