Bein útsending frá vitnisburði James Comey

Yfirheyrsla yfir James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma. Horfðu á beina útsendingu frá yfirheyrslunni hér.

James Comey - bein útsending
Auglýsing


James Comey, fyrr­ver­andi for­stjóri banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar FBI, kemur fyrir þing­nefnd öld­ung­ar­deildar Banda­ríkja­þings í dag klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Hér að ofan er bein útsend­ing frá yfir­heyrsl­unni á YouTu­be.

Comey verður eið­svar­inn og svarar spurn­ingum þing­manna um afskipti Don­alds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, af rann­sókn lög­reglu­yf­ir­valda á Mich­ael Flynn, fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa í stjórn Trumps.

Auglýsing

Comey birti í gær skrif­lega lýs­ingu á því sem henn kemur til með að ræða um í yfir­heyrslu þings­ins í dag. Þar kemur fram að Trump hafi haft bein afskipti af rann­sókn FBI og farið fram á að hún yrði látin niður falla.

„Ég vona að þú get­ir séð þér fært að sleppa þessu og látið Flynn vera. Hann er góður ná­ung­i,“ seg­ir Comey að Trump hafi sagt. Einnig: „For­­­set­inn sagð­i, „Ég þarf holl­ustu, ég býst við holl­­ust­u.“ Ég hreyfði mig ekki og tal­aði hvorki né breytti and­lits­­­svipn­um mín­um á nokk­urn máta, í þeirri vand­ræð­al­egu þögn sem síðan fylgd­i.“

Nánar má lesa um skrif­lega lýs­ingu Comey hér á vefn­um.

Comey seg­ist hafa skrifað sam­visku­sam­lega hjá sér ágrip af fundum sínum með for­set­an­um. Hann mun meðal ann­ars ræða þau minn­is­blöð í yfir­heyrsl­unni.

Alvar­legar ásak­anir

Allar vís­bend­ingar benda til þess að Don­ald Trump hafi gerst sekur um að hindra fram­gang rétt­vís­inn­ar. Frétta­skýrendur og álits­gjafar vest­an­hafs hafa tekið sterkt til orða þegar ásök­unum er lýst og segja sumir Waterga­te-­málið svo­kall­aða sem kom upp á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar blikna í sam­an­burði.

Comey mun að öllum lík­indum ekki geta sagt margt um rann­sókn­ina sjálfa eða þau tengsl sem alrík­is­lög­reglan rann­sakar nú á milli kosn­inga­bar­áttu Don­alds Trump og Rússa. Comey mun hins vegar gefa inn­sýn í sam­skipti sín við for­set­ann sem rak hann úr stöðu yfir­manns FBI.

Trump tvítar

Gert er ráð fyrir að Don­ald Trump muni fylgj­ast með yfir­heyrsl­unni á skrif­stofu sinni og að hann muni tjá hug sinn á meðan yfir­heyrsl­unni stend­ur. Hér má lesa Twitt­erskila­boð Trumps.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent