Hefur engar efasemdir um að Rússar skiptu sér af kosningunum

Trump bað Comey aldrei beinlínis um að FBI myndi hætta rannsókn á afskiptum Rússa. Manngerð Trumps knúði Comey til þess að skrifa ítarleg minnisblöð eftir fundi þeirra.

James Comey var forstjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara í byrjun maí.
James Comey var forstjóri FBI þar til Donald Trump lét hann fara í byrjun maí.
Auglýsing

James Comey, fyrr­ver­andi for­stjóri FBI sem Don­ald Trump for­seti Banda­ríkj­anna rak 9. maí síð­ast­lið­inn, seg­ist ekki hafa neinar efa­semdir um að rúss­nesk stjórn­völd hafi skipt sér af og haft áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar vest­an­hafs í fyrra.

­Þrátt fyrir afskipti Rússa seg­ist Comey vera sann­færður um að engum atkvæðum í kosn­ing­unum hafi verið breytt.

Þessu svar­aði hann þegar hann var spurður í yfir­heyrslu leyni­þjón­ustu­nefndar banda­ríska þings­ins sem stendur nú yfir í Was­hington DC.

Don­ald Trump óskaði aldrei bein­línis eftir því að rann­sóknin á afskiptum Rússa yrði hætt, segir Comey. Trump sagð­ist hins vegar „vona“ að hægt væri að láta málið niður falla. Comey segir það ekki vera sitt að ákvarða hvort for­set­inn hafi brotið lög.

Auglýsing

Hvað hefur komið fram

  • Comey segir brjóst­vit sitt hafa sagt honum að Don­ald Trump hafi viljað fá eitt­hvað gegn því að Comey fengi að halda starfi sínu sem for­stjóri FBI. Comey og Trump fund­uðu níu sinnum síðan Trump var kjör­inn for­seti í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um. Comey telur það hafa verið óvenju­lega margir fund­ir, enda hafði hann aðeins hitt Barack Obama mun sjaldnar á mun lengra tíma­bili.
  • For­stjór­inn fyrr­ver­andi seg­ist hafa byrjað að skrifa ítar­legar lýs­ingar á fundum sínum með Don­ald Trump eftir að hafa hitt hann í fyrsta sinn. Spurður hvers vegna hann taldi það hafa verið mik­il­vægt svarði hann að mann­gerð Trumps auk fleiri óvenju­legra hluta hafi gert það að verk­um. Comey seg­ist ekki hafa skrifað minn­is­blöð um aðra fundi með yfir­mönnum sínum og að hann hafi aldrei gert það áður, hvorki með George W. Bush eða Barack Obama.
  • Comey seg­ist hafa ritað minn­is­blöð sín vegna þess að hann hafi vitað að hann þyrfti ein­hvern tíma að verja sjálfan sig og stofn­un­ina sem hann starf­aði fyr­ir.
  • Don­ald Trump sjálfur var aldrei til rann­sóknar á meðan Comey var for­stjóri FBI.
  • Comey seg­ist hafa hafa haft áhyggjur af því að Trump myndi ljúga um efni einka­funda þeirra tveggja.
  • Comey seg­ist ekki vita hvers vegna hann var rek­inn úr stöðu sinni. Hann seg­ist halda að það hafi verið vegna rann­sóknar FBI á afskiptum Rússa.
  • Comey seg­ist hafa skilið ósk Trumps um að FBI myndi hætta rann­sókn á Mich­ael Flynn, fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa, sem skip­un. Skip­un­inni fylgdi hann ekki eft­ir.

Yfir­heyrslan stendur enn yfir. Kjarn­inn mun fjalla um yfir­heyrsl­una og eft­ir­mála hennar í dag og á næstu dög­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent