Ógnir netárása og hryðjuverka ræddar á fundi þjóðaröryggisráðs

Forsætisráðherra segir að trúnaður ríki um þær upplýsingar sem kynntar voru á fundinum, eðli málsins samkvæmt.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Auglýsing

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð kom saman í gær, og voru þar rædd ýmis almenn mál sem tengj­ast örygg­is­vörnum Íslands. 

Sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son, gerði grein fyrir vinnu við net­ör­ygg­is­mál, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra kynnti vinnu við gerð við­bún­að­ar- og varn­ar­á­ætl­unar fyrir Ísland og Har­aldur Johann­es­sen Rík­is­lög­reglu­stjóri kynnti vinnu varð­andi hryðju­verkaógn í ljósi atburða í mörgum löndum á und­an­förnum miss­erum og árum. 

Á fundi þjóðar­ör­ygg­is­ráðs­ins var jafn­framt gengið frá skipun Þór­unnar J. Haf­stein í emb­ætti rit­ara þjóðar­ör­ygg­is­ráðs. Þór­unn hefur starfað sem skrif­stofu­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu en mun nú hefja störf fyrir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið.

Auglýsing

Í þjóðar­ör­ygg­is­ráði sitja 11 full­trú­ar. Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra er for­maður ráðs­ins og stýrir fundum þess. Þá eiga þar sæti utan­rík­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og ráðu­neyt­is­stjórar ráðu­neyt­anna þriggja. 

Enn fremur eiga fast sæti í ráð­inu tveir þing­menn, annar úr þing­flokki sem skipar meiri­hluta á þingi en hinn er úr þing­flokki minni­hluta. Þá sitja í ráð­inu for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unn­ar, Rík­is­lög­reglu­stjóri og full­trúi Lands­bjarg­ar. 

Í við­tali við RÚV sagði Bjarni Bene­dikts­son að best færi á því að lög­reglan svar­aði fyrir aðgerðir á hverjum tíma, svo sem þegar um við­búnað væri að ræða á fjölda­sam­komum, eins og raunin hefði verið um helg­ina þar sem vopn­aðir sér­sveit­ar­menn voru sjá­an­leg­ir. Hann sagði enn fremur að ekki væri hægt að búast við því að Ísland yrði und­an­skilið í þeirri þróun sem hefði átt sér stað í löndum víða í kringum okk­ur, þar sem hryðju­verk hefðu verið fram­in. 

Hann benti enn fremur á að Ísland væri öruggt land, og að lög­reglan væri almennt ekki vopnum búin, og væri sú eina á Norð­ur­lönd­unum þar sem þannig væri. 

Hann ítrek­aði síðan að upp­lýs­ingar sem kynntar væru á fundum ráðs­ins væru bundnar trún­aði, og ekki hægt að ræða um þær eða kynna almenn­ingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent