Íslendingar hlynntir sýnilegum vopnaburði lögreglu á fjöldasamkomum

Meirihluti svarenda viðhorfskönnunar Maskínu sem tóku afstöðu voru hlynntir sýnilegum vopnaburði lögreglu á fjöldasamkomum. Mestur var stuðningur ómenntaðra, tekjulágra og kjósenda Sjálfstæðisflokksins

Stór hluti Íslendinga er hlynntur því að lögreglumenn beri sýnileg vopn á fjöldasamkomum
Stór hluti Íslendinga er hlynntur því að lögreglumenn beri sýnileg vopn á fjöldasamkomum
Auglýsing

Um 58% þeirra sem tóku afstöðu í við­horfskönnun Mask­ínu voru hlynntir því að vopn­aðir lög­reglu­menn séu sýni­legir á fjölda­sam­kom­um. Hlut­fall hlynntra var hæst meðal ómennt­aðra og kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks. 

Mask­ína birti nið­ur­stöður sínar úr við­horfskönnun á sýni­leika vopn­aðra lög­reglu­manna á fjölda­sam­komum í dag. Spurt var: Hversu hlynnt(­ur) eða and­víg(­ur) ertu því að vopn­aðir lög­reglu­menn séu sýni­legir á fjölda­sam­komum á Íslandi? Svar­endur voru 1046 tals­ins og komu úr slembi­úr­taki Þjóð­skrár á aldr­inum 18-75. Könn­unin fór fram dag­ana 16.-19. júní síð­ast­lið­inn.

Meira en þrír af hverjum fjórum kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru hlynntir vopna­burð­in­um, en tveir af hverjum þremur kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Við­reisn­ar. Hlut­fallið er mun lægra meðal kjós­enda ann­arra flokka, en lægsta hlut­fallið er meðal kjós­enda Pírata, eða 14%.

Auglýsing

Nokkur munur virt­ist vera á milli tekju­hópa, en um 61% svar­enda í lægsta tekju­hópi voru hlynntir sýni­legum vopna­burði lög­reglu miðað við rúm 42% svar­enda í hinum tekju­hóp­un­um. 

Einnig voru svörin breyti­leg milli lands­hluta, en íbúar á Suð­ur­landi, Reykja­nesi, Vest­ur­landi og Vest­fjörðum virt­ust mun hlynnt­ari sýni­legum vopna­burði lög­reglu en íbúar ann­arra lands­hluta. Hlut­fall hlynntra var lægst meðal Reykja­vík­ur­bú­a. 

Mestur var mun­ur­inn þó eftir mennt­un­ar­stigi, en 73,5% svar­enda sem ein­ungis höfðu lokið grunn­skóla­prófi svör­uðu ját­andi á meðan ein­ungis 28,9% svar­enda sem lokið höfðu háskóla­prófi gerðu það. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent