Lífeyrisþegar fengu 3,4 milljarða í ofgreitt frá Tryggingastofnun

57 þúsund lífeyrisþegar fengu alls 86,5 milljarða króna í tekjutengdar greiðslur í fyrra. 43 prósent fékk of lítið greitt en 44 prósent fékk ofgreitt.

Fólk samankomið. By Rakel Tómasdóttir
Auglýsing

Alls eiga 43 pró­sent þeirra 57 þús­und líf­eyr­is­þega sem fengu greitt tekju­tengdar greiðslur á síð­asta ári frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins rétt á inn­eign upp á sam­tals tvo millj­arða króna vegna van­á­ætl­aðra greiðslna á síð­asta ári. 44 pró­sent þeirra sem fengu greiðslur fengu hins vegar ofgreitt, sam­tals 3,4 millj­arða króna. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Trygg­inga­stofn­un­ar. 

Þar segir að til að tryggja að líf­eyr­is­þegar fái réttar greiðslur í sam­ræmi við raun­veru­legar tekjur þeirra á árinu 2016 séu greiðslur end­ur­reikn­aðar miðað við tekju­upp­lýs­ingar í stað­festum skatt­fram­töl­u­m. 

Sam­tals var end­ur­reiknað fyrir 57 þús­und líf­eyr­is­þega sem fengu greidda 86,5 millj­arða króna í tekju­tengdar greiðslur á síð­asta ári. Þar af voru 36 þús­und elli­líf­eyr­is­þegar og 21 þús­und örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þeg­ar. Í frétt­inni seg­ir: „niður­staða end­ur­reikn­ings­ins leiðir í ljós að 43% þeirra sem fengu tekju­tengdar greiðslur á síð­asta ári eiga inn­eign hjá TR upp á sam­tals 2 millj­arða króna en 44% hafa fengið ofgreitt, sam­tals 3,4 millj­arða króna. Með­al­upp­hæð inn­eigna sem líf­eyr­is­þegar eiga hjá TR er 84 þús­und krónur en með­al­skuld þeirra sem hafa fengið ofgreitt er 135 þús­und krón­ur.“

Auglýsing

Trygg­inga­stofnun segir að hún muni gera upp við þá líf­eyr­is­þega sem eiga inn­eign með ein­greiðslu þann 1. júlí næst­kom­andi. „Inn­heimta skulda sem orðið hafa til vegna ofgreiðslu á síð­asta ári hefst hins vegar þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Miðað er við að skuldin verði greidd á 12 mán­uðum en ef það reyn­ist líf­eyr­is­þegum íþyngj­andi er hægt að semja um lengri tíma.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent