Formaður Lögmannafélagsins: „Ráðherra mistókst“

Reimar Pétursson hrl. segir Alþingi hafa skort skilning á ýmsu því sem til álita kom við skipan 15 dómara við Landsrétt.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Reimar Pét­urs­son hrl., for­maður Lög­manna­fé­lags Íslands, segir í grein í Lög­manna­blað­inu, að mik­il­vægt sé að „öt­ul­lega að því að lág­marka þanna skaða“ sem orð­inn er vegna þess hvernig staðið var að skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt. Hann segir jafn­framt mik­il­vægt að „nýi dóm­stóll­inn fái almenni­lega við­spyrnu þegar hann tekur til starfa og að dóm­arar þar gjaldi sem minnst fyrir þá ann­marka sem urðu við skipun þeirra.“

Eins og kunn­ugt er gerði Sig­ríður Á. And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, fjórar breyt­ingar á lista dóm­nefndar sem mat hæfi umsækj­enda um skipan dóm­ara við Lands­rétt. Dóm­arar voru að lok­um, eftir harðar póli­tískar deil­ur, skip­að­ir Aðal­­­steinn E. Jón­a­s­­son, Arn­fríður Ein­­ar­s­dótt­ir, Ás­­mundur Helga­­son, Dav­­íð Þór Björg­vins­­son, Her­vör Þor­­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­­ar­s­dótt­ir, Jóhannes Sig­­urðs­­son, Jón Finn­­björns­­son, Krist­­björg Steph­­en­­sen, Oddný Mjöll Arn­­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­­ar­dótt­ir, Sig­­urður Tómas Magn­ús­­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­son og Þor­­geir Ingi Njáls­­son.

Auglýsing

Tveir umsækj­end­ur, sem voru á lista dóm­nefndar yfir 15 hæf­ustu umsækj­end­ur, hafa þegar höfðað mál, en það er Ást­ráður Har­alds­son hrl. og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hrl. Málið er þegar komið inn á borð dóm­stóla, eftir að flýti­með­ferð var sam­þykkt. Kjarn­inn birti gögn um málið, meðan það var til umfjöll­unar í þing­inu, þar á meðal lista yfir umsækj­endur í hæf­is­röð dóm­nefnd­ar, og hvernig ein­staka þættir voru metn­ir. 

Í grein Reim­ars kemur fram að ráð­herra hafi, sam­kvæmt lög­um, átt að velja hæf­asta umsækj­and­ann og byggja ákvörðun sína á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og full­nægj­andi rann­sókn.

„Ráð­herra mistókst. Sjón­ar­mið ráð­herra var að gefa dóm­ara­reynslu aukið vægi. Nið­ur­stöðu ráð­herra skorti rök­rétt sam­hengi við það sjón­ar­mið. Ráð­herra var skylt að leggja til­lögur sínar um skipun lands­rétt­ar­dóm­ara fyrir Alþingi til sam­þykkt­ar. Jafn­framt var ráð­herra skylt að afla heim­ildar Alþingis til að víkja frá umsögn dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í þessu fyr­ir­komu­lagi fólst ekki heim­ild ráð­herra til að beita geð­þótta til til­lögu­gerð­ina. Þvert á móti fólst í þessu sér­stök vörn gegn geð­þótta­á­kvörðun hans. Alþingi virð­ist hafa skort skiln­ing á þessu. For­menn tveggja stjórn­ar­flokka upp­lýstu til dæmis eftir afgreiðslu þings­ins að þeirra þing­flokkar hafi til­kynnt ráð­herra þegar umsögnin lá fyrir að nið­ur­staða nefnd­ar­innar „færi ekki í gegn“. Áður yrði að leið­rétta „kynja­halla“. Þessi skil­yrð­is­lausa krafa þing­flokk­anna stenst illa lög. Notkun kynja­sjón­ar­miða til að skáka út hæf­ari umsækjendum er nefni­lega and­stæð lögum og reyndar einnig stjórn­ar­skrá. Því gat aldrei komið til álita að hafna nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar á þessum for­sendum nema fyrir lægi vönduð rann­sókn sem stað­festi að til staðar væru jafn­hæfir umsækj­endur af mis­mun­andi kyn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent