Nafnverð íbúðarhúsnæðis hækkað um 50% á 18 mánuðum á Suðurnesjum

Nafnverð íbúðarhúsnæðis á Suðurnesjum hefur hækkað um 50% frá byrjun árs 2016, samkvæmt nýrri úttekt sem Reykjavík Economics útbjó fyrir Íslandsbanka.

Auglýsing
íbúðarhúsnæði hefur hækkað um tæpan helming frá ársbyrjun 2016
íbúðarhúsnæði hefur hækkað um tæpan helming frá ársbyrjun 2016

Nafn­verð íbúð­ar­hús­næðis hækkað um 50% á einu og hálfu ári á Suð­ur­nesjum, sam­kvæmt nýrri skýrslu birt af Íslands­banka. 

Skýrslan, sem ber heitið End­ur­reisn íbúð­ar­mark­að­ar­ins á Suð­ur­nesju­m, 

var útbúin af Reykja­vík Economics fyrir Íslands­banka. í henni kemur fram að sam­fé­lagið á Suð­ur­nesjum sé að ná fyrri styrk eftir efna­hags­á­fallið haustið 2009 og brott­för varn­ar­liðs­ins haustið 2006.

Frá árinu 2005 hafi íbúum á Suð­ur­nesjum fjölgað um 49%. Í byrjun árs­ins 2017 hafi svo heild­ar­mann­fjöldi íbúa í lands­hlut­anum nálg­ast 25 þús­und­um. 

Auglýsing
Aukin fólks­fjölgun á Suð­ur­nesjum hefur stutt við íbúða­mark­að­inn, en nafn­verð íbúða hefur hækkað um 50% síðan í árs­byrjun 2016. En þrátt fyrir mikla hækkun íbúða­verðs er það enn að jafn­aði undir eða nálægt bygg­ing­ar­kostn­aði, sam­kæmt skýrsl­unni.

Breyt­ing hefur líka verið á ald­urs­dreif­ingu kaup­enda, en ungt fólk hafi í æ rík­ari mæli fest kaup á hús­næði. Fyrstu kaup­endum hafi fjölgað hratt á svæð­inu en um fjórð­ungur allra kaup­samn­inga á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2017 voru vegna fyrstu kaupa. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent