Norskur orkuskattur gæti skilað 7 milljörðum í ríkissjóð

Fjármála- og efnahagsráðherra svaraði fyrirspurn frá þingmanni Samfylkingarinnar um hversu mikið gæti skilað sér í ríkissjóð af skatti sem byggir á norskri fyrirmynd.

burfell_16464637190_o.jpg
Auglýsing

Mat á tekjum rík­is­sjóðs af auð­lind­arentu­skatti að norskri fyr­ir­mynd, miðað við núver­andi skatt­hlut­fall 34,3%, er sam­kvæmt fram­an­greindum for­sendum kringum 7 millj­arð­ar.

Þetta kemur fram í svari Bene­dikts Jóhann­es­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Odd­nýjar Harð­ar­dótt­ur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. 

Í fyr­ir­spurn­inni var sér­stak­lega vikið að norskri fyr­ir­mynd, þar sem um hana er fjallað í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands.

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði út í skatt á virkjanir.

Í svari Bene­dikts kemur fram, að aðeins sé um grófa nálgun að ræða og taka þurfi til­lit til ýmissa fyr­ir­vara. „Til að fá nákvæmara og áreið­an­legra tekju­mat þarf að fara í viða­meiri rann­sókn­ar­vinnu en þá sem fram fór við vinnslu þessa svars. Meðal ann­ars þarf að afla mun ítar­legri gagna en fyrir liggja opin­ber­lega um starf­semi raf­orku­fyr­ir­tækja, þar á meðal upp­lýs­inga fyrir hverja virkjun fyrir sig og fá upp­gefið raf­orku­verð lang­tíma­samn­inga sér­stak­lega. Þá þarf einnig að skoða nánar hvort hinn sér­staki arð­sem­is­frá­dráttur sem not­aður er við útreikn­ing skatts­ins í Nor­egi eigi við hér á land­i,“ segir í svari Bene­dikts.

Auglýsing

Sér­staki auð­lind­arentu­skatt­ur­inn (n. grunn­renteskatt) á raf­orku­fyr­ir­tæki í Nor­egi er 34,3% af sér­stökum skatt­stofni sem reikn­aður er fyrir hverja virkjun fyrir sig. Skatt­stofn­inn sam­anstendur af reikn­uðum sölu­tekjum að frá­dregnum rekstr­ar­kostn­aði, leyf­is­gjöld­um, fast­eigna­skött­um, afskriftum og sér­stökum arð­sem­is­frá­drætti (n. skjerm­ings­fra­drag), að því er segir í svari ráð­herra. 1 Skatt­ur­inn er aðeins lagður á þær virkj­anir sem eru með upp­sett afl meira en 10 000 kVA (8 MW). Flestar virkj­anir sem falla undir þau skil­yrði eru í eigu HS Orku, Lands­virkj­un­ar, Orku nátt­úr­unn­ar, Orku­bús Vest­fjarða og Orku­söl­unn­ar.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Í svari Bene­dikts er sér­stak­lega tekið fram að ekki hafi verið unnt að afla gagna um hverja virkjun fyrir sig, sem skatt­ur­inn myndi ná til á Íslandi.

„Þau gögn sem matið á tekjum rík­is­sjóðs af auð­lind­arentu­skatti að norskri fyr­mynd bygg­ist á eru upp­lýs­ingar Orku­stofn­unar um raf­orku­vinnslu eftir fyr­ir­tækj­um, með­al­verði raf­orku á hverja kWst frá Orku­stofnun og upp­lýs­ingum sem fram koma í árs­reikn­ingum fyrr­nefndra raf­orku­fyr­ir­tækja. Ekki var unnt að fá upp­lýs­ing­arnar fyrir hverja virkj­un. Tekju­matið hér er þó ekki byggt á upp­lýs­ingum eftir virkj­unum heldur eftir raf­orku­fyr­ir­tækjum og því aðeins um ákveðna nálgun að ræða. Byggt er á gögnum frá árinu 2015 nema annað sé tekið fram.“

„Skatt­stofn­inn reikn­ast af sölu­tekjum sem eru marg­feldi af raf­orku­fram­leiðslu og raf­orku­verði sem fæst á mark­aði. Ef raf­orku­fram­leiðsla er sam­kvæmt lang­tíma­samn­ingum er stuðst við samn­ings­verð í stað mark­aðs­verðs. Við útreikn­inga var miðað við að með­al­raforku­verð væri 5,22 krón­ur/kWst á mark­aði. Það sam­svarar með­al­verði árs­ins 2015 sam­kvæmt Orku­stofn­un. Upp­lýs­ingar um raf­orku­verð sam­kvæmt lang­tíma­samn­ingum eru hins vegar ekki fáan­legar enda í flestum til­fellum um trún­að­ar­upp­lýs­ingar að ræða. Farin var sú leið að miða við 3,23 krón­ur/kWst (24,5 USD/MWst) sem er það raf­orku­verð til iðn­að­ar­ins að með­töldum flutn­ingi sem fram kemur í árs­reikn­ingi Lands­virkj­un­ar. Til frá­dráttar kom kostn­aður við raf­orku­flutn­ing til þess að reyna nálg­ast verð án flutn­ings,“ segir í svari ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent