Tveir nefndarmenn vildu meiri lækkun vaxta

Tveir meðlimir peningastefnunefndar Seðlabankans vildu lækka stýrivexti um 0,5 prósentustig við síðustu vaxtaákvörðun fyrir tveimur vikum síðan, en vextirnir voru lækkaðir um 0,25 prósentustig.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri
Auglýsing

Tveir með­limir pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans vildu lækka stýri­vexti um 0,5% og nefndi einn þeirra verð­hjöðnun utan fast­eigna­mark­að­ar, verri afkomu útflutn­ings­fyr­ir­tækja og auk­innar sam­keppni á vöru­mark­aði því til rök­stuðn­ings. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð nefnd­ar­innar vegna síð­ustu vaxta­á­kvörð­un­ar. 

Í fund­ar­gerð­inni kemur fram að traust­ari kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við verð­bólgu­mark­miðið og hækkun gengis krón­unnar hefðu gert nefnd­inni mögu­legt að ná lög­boðnu mark­miði um verð­stöð­ug­leika með lægri vöxtum en ann­ars. Því hafi allir nefnd­ar­menn stutt til­lögu seðla­banka­stjóra um að lækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig. 

Hins vegar hefðu tveir þeirra heldur kosið að lækka vexti um 0,5 pró­sentu­stig, en töldu sig engu að síður geta fall­ist á til­lög­una. Taldi einn nefnd­ar­maður raun­vextir útlána til aðila utan fast­eigna­mark­aðs væru of háir þar sem verð­hjöðnun um 0,8% hafi átt sér stað á tíma­bil­inu ef hús­næð­islið­ur­inn er tek­inn úr vísi­tölu neyslu­verðs. 

Auglýsing

Sömu­leiðis taldi sami nefnd­ar­maður að hátt gengi krón­unnar haml­aði eft­ir­spurn og minnk­aði smám saman eigið fé fyr­ir­tækja í útflutn­ingi, einkum þeirra sem skuld­uðu í krón­um. Að því gefnu mætti líta á vaxta­lækkun sem mót­væg­is­að­gerð við háu og hækk­andi gengi krón­unn­ar. 

Einnig benti nefnd­ar­mað­ur­inn á aukna sam­keppni á vöru­mark­aði á tíma­bil­inu, en hún fæli í sér meiri kaup­mátt neyt­enda og lækkun á því stigi atvinnu­leysis sem sam­ræm­ist stöðugri verð­bólgu.

Í pen­inga­stefnu­nefnd sitja þrír aðilar innan Seðla­bank­ans, en þeir eru Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og Þór­ar­inn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans. 

Tveir nefnd­ar­menn eru utan­að­kom­andi, en þeir eru Gylfi Zoëga pró­fessor í HÍ, og Katrín Ólafs­dóttir lektor í HR. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent