Hætti sem varamaður til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstur

Ásta Dís Óladóttir hætti sem varamaður í bankaráði Landsbankans 21. júní, skömmu eftir að tilkynnt var um sátt bankans við Samkeppniseftirlitið.

Landsbankinn
Auglýsing

Ásta Dís Óla­dóttir hætti sem vara­maður í banka­ráði Lands­bank­ans 21. júní þar sem hún taldi það ekki sam­rým­an­legt setu sinni í stjórn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Þrátt fyrir að það hafi verið metið svo í upp­hafi, þegar hún tók sæti vara­manns, að það væri í lagi, þá varð úr að hún hætti, eftir frek­ari umhugs­un.

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans.Helga Björk Eiríks­dótt­ir, for­maður banka­ráðs­ins, segir í sam­tali við Kjarn­ann að þetta hafi orðið nið­ur­stað­an, ein­göngu til að tryggja að það væri eng­inn vafi uppi, varð­andi þessi tengsl.

Skömmu áður en Ásta Dís til­kynnti banka­ráð­inu um að hún ætl­aði sér að hætta sem vara­mað­ur, var til­kynnt um sátt sem Lands­bank­inn gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið. Um hana var til­kynnt 12. júní.

Mark­mið sátt­ar­innar er að draga úr „skipti­kostn­aði í fjár­mála­þjón­ustu, stuðla að virkara sam­keppn­is­að­haldi við­skipta­vina og vinna gegn aðstæðum sem rennt gætu stoðum undir þögla sam­hæf­ingu á við­skipta­banka­mark­að­i,“ segir í til­kynn­ingu vegna sátt­ar­inn­ar.

Auglýsing

Þá segir enn­fremur að Lands­bank­inn hafi átt „gott sam­starf við Sam­keppn­is­eft­ir­litið við að greina sam­keppn­is­rétt­ar­legar áskor­anir á mark­aði fyrir við­skipta­banka­starf­semi og móta aðgerð­ar­á­ætlun til að örva sam­keppni. Þær aðgerðir sem bank­inn ræðst í eru afrakstur þeirrar vinnu. Það er mat bank­ans að aðgerð­irnar styrki stöðu og rétt­indi við­skipta­vina, auki gagn­sæi og ýti undir frek­ari tækni­þróun í við­skipta­banka­starf­semi. Hluti af sam­starf­inu hefur falið í sér að inn­leiða þær aðgerðir sem fjallað er um í sátt­inni og eru margar þeirra þegar komnar til fram­kvæmda.“

Á grund­velli sátt­ar­innar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið var ákveðið að ráð­ast í eft­ir­taldar aðgerð­ir, eins og þær eru útli­staðar á vef bank­ans.

  • Upp­greiðslu­gjöld verða ekki lögð á upp­greiðslur skuld­ara inn á nein ný og útistand­andi lán ein­stak­linga og smærri fyr­ir­tækja sem bera breyti­lega vexti.

  • Þóknun við flutn­ing bund­ins sér­eigna­sparn­aðar frá bank­anum mun ekki fara yfir til­tekin hámörk.

  • Yfir­taka íbúða­láns verður ekki háð því að kaup­and­inn færi önnur banka­við­skipti sín til bank­ans.

  • Við­skipta­vinum verður auð­veldað að færa banka­við­skipti sín milli banka. Val, þróun og inn­leið­ing kerfa og tækni­legra úrlausna mun miða að þessu og þjón­ustukann­anir nýttar til að bera kennsl á áherslur við­skipta­vina í tengslum við þetta og mun bank­inn bregð­ast við þeim.

  • Við­skipta­vinir verða upp­lýstir sér­stak­lega um veru­legar breyt­ingar á vöxtum og verð­skrá áður en þær eiga sér stað, til að gefa við­skipta­vinum svig­rúm til þess að færa við­skipti sín ef þeir svo kjósa.

  • Tekið verður upp upp­lýs­inga­tækni­við­mót (e. API) sem gerir þriðju aðilum kleift að setja upp sam­an­burð­ar­vef­síðu sem virkjað gæti skil­virkara neyt­enda­að­hald.

  • Til­teknir skil­málar íbúða­lána sem fela í sér veru­lega bind­ingu verða ekki virkj­að­ir.

Í banka­ráði Lands­bank­ans sitja, auk Helgu Bjark­ar, Berg­lind Svav­ars­dótt­ir, Magnús Pét­urs­son, sem er vara­for­maður ráðs­ins, Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, Einar Þór Bjarna­son, Hersir Sig­ur­geirs­son og Jón Guð­mann Pét­urs­son. Vara­maður í banka­ráð­inu er Sam­úel Guð­munds­son.

Lands­bank­inn er að meira en 98 pró­sent leyti í eigu íslenska rík­is­ins, en um er að ræða eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, þegar horft er til efna­hags og eigin fjárs. Í byrjun þessa árs var eigin fé Lands­bank­ans 251 millj­arður króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent