Markaðsvirði Kauphallarinnar eru rúmir 1.000 milljarðar

Samanlagt markaðsvirði allra fyrirtækja Kauphallarinnar námu 1.058 milljörðum undir lok júnímánaðar.

kauphöll
Auglýsing

Sam­an­lagt mark­aðsvirði eigin fjár skráðra fyr­ir­tækja í Kaup­höll­inni voru um 1.058 millj­arðar króna undir lok júní­mán­að­ar, þar af 980 millj­arðar á OMX- mark­að­in­um. 

Bók­fært eigið fé félag­anna á OMX-­mark­aði frá fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 var nokkru lægri en mark­aðsvirði, eða um 450 millj­arðar króna. Mik­ill munur er á mark­aðsvirði og bók­færðu virði milli félaga, en mun­ur­inn sést á svoköll­uðu P/B- hlut­falli þeirra. 

P/B- hlutfall skráðra fyrirtækja í Kauphöll. Heimild: Keldan.P/B hlut­fallið er notað af fjár­festum til að finna út hvernig félög  á mark­aði eru met­in. Hæst er hlut­fallið 5,84 hjá Nýherja, en lægst er það 1,11 hjá Sím­an­um. Ef hlut­fallið er mjög lágt gæti það bent til þess að félagið sé annað hvort und­ir­verð­lagt eða þá að það eigi í und­ir­liggj­andi rekstr­ar­erf­ið­leik­um. Hafa ber þó í huga að ekki er hægt að að bera saman P/B- hlut­föll milli mis­mun­andi fyr­ir­tækja þar sem ásætt­an­legt skulda­hlut­fall er breyti­legt eftir rekstr­ar­um­hverfi.

Auglýsing
Stærstu fyr­ir­tækin í Kaup­höll­inni eru Marel og Öss­ur, en sam­an­lagt mark­aðsvirði þeirra er um 44% af virði OMX-­mark­að­ar­ins. Með­fylgj­andi er tafla þar sem bók­fært eigið fé fyr­ir­tækj­anna er sett upp ásamt mark­aðsvirði þeirra.

Mark­aðsvirði og bók­fært eigið fé fyr­ir­tækja á OMX-­mark­aði í Kaup­höll­inni

Fyr­ir­tækiMark­aðsvirði Bók­fært eigið fé
Marel236 ma.61 ma. 
Össur198 ma.46 ma.
Icelandair70 ma.52 ma.
Reitir70 ma.47 ma.
Eim­skip59 ma.28 ma.
HB Grandi59 ma.30 ma.
Hagar50 ma.18 ma.
Reg­inn50 ma.18 ma.
Eik40 ma.27 ma.
N130 ma.12 ma.
Sjóvá27 ma.15 ma.
Vís23 ma.16 ma.
TM21 ma.12 ma.
Voice16 ma.7 ma.
Nýherji15 ma.3 ma.
Skelj­ungur12 ma.7 ma.

Hrær­ingar á mark­aði

Nokkrar hrær­ingar hafa verið á mark­aðnum und­an­farna daga, en Kjarn­inn greindi frá því í að hluta­bréfa­vísi­talan lækk­aði um 1,5% í gær. Lækk­un­ina hefði mátt skýra með auknum erlendum fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­ina, en þeir eru stærstu eig­endur allra fyr­ir­tækj­anna. 

Sam­hliða minnk­andi eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóða í fyr­ir­tækj­unum hafa aflandskrónu­eig­endur verið að bæta við eign­ar­hlut sinn í mörgum félög­um, en þeir eru nú komnir í hóp stærstu eig­enda margra fyr­ir­tækj­anna.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar