Gengi bréfa Haga hrynur

Gengi hlutabréfa samstæðu Haga hefur hrunið það sem af er dags í kjölfar tilkynningar þeirra til Kauphallarinnar um breyttar markaðsaðstæður.

Opnun Costco virðist hafa haft töluverð áhrif á rekstur Haga.
Opnun Costco virðist hafa haft töluverð áhrif á rekstur Haga.
Auglýsing

Gengi hluta­bréfa í Högum hafði lækkað um 5,72% rétt fyrir kl. hálf 11 í morg­un, en sam­stæðan sendi til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar um jún­í­upp­gjör sitt í gær eftir lokun mark­aða. Í upp­gjör­inu kom fram að sala Haga í mat­vöru­versl­unum sínum hafi dreg­ist saman um 9,4% milli júní­mán­aða 2016 og 2017.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni hefur breytt sam­keppn­isum­hverfi hafi haft áhrif á rekstur og mark­aðs­stöðu Haga, en þessir þættir hafi komið í ljós í bráða­birgða­upp­gjöri fyrir júní­mán­uð. 

­Magnaukn­ing sölu á fyrsta árs­fjórð­ungi í mat­vöru­versl­unum sam­stæð­unnar var 1,8% milli áranna 2016 og 2017 og fjöldi við­skipta­vina jókst um 1,7%.  Hins veg­ar, ef bornar eru saman sam­bæri­legar tölur fyrir júní­mán­uð, þá minnk­aði salan um 9,4% og við­skipta­vinum fækk­aði um 1,8% milli ára. Fram­legð­ar­hlut­fallið lækk­aði sömu­leiðis um 0,4 pró­sentu­stig milli júní­mán­aða 2016 og 2017.

Einnig kemur fram að þótt sam­stæðan hafi lagt af starf­semi og verð­hjöðnun hafi átt sér stað í mat­vöru á sam­an­burð­ar­tíma­bil­inu þá hafi aðrir stórir kostn­að­ar­liðir hins vegar hækk­að. Má þar nefna kjara­samn­inga og þenslu á vinnu­mark­aði, auk þess sem flestir leigu­samn­ingar félags­ins eru bundnir vísi­tölu neyslu­verðs, sem hefur hækkað á tíma­bil­inu.

Auglýsing
Viðbrögð mark­að­ar­ins við til­kynn­ingu Haga hafa verið nei­kvæð í fyrstu, en dag­gengi hluta­bréfa þeirra hafði lækkað um 5,72% um hálf 11 í morg­un. Á sama tíma hafði OMX vísi­tala Kaup­hall­ar­inar lækkað um 1,54%. Virð­is­lækk­unin hefur gengið eitt­hvað til­baka það sem af er dags, en mbl.is greindi frá því að gengi Haga hafi lækkað um 10% þegar tæpar 20 mín­útur höfðu liðið frá opnun mark­aða. 

Kjarn­inn hefur áður fjallað um versn­andi gengi Haga, en hluta­bréfa­verð sam­stæð­unnar hefur lækkað hratt frá opnun Costco. Rekstur Haga hefur einnig tekið nokkrum breyt­ingum und­an­farin miss­eri, en þeir keyptu Lyfju og Olís á síð­asta rekstr­ar­ári. Búast má við harðn­andi sam­keppni fram und­an, en gert er ráð fyrir því að sænski fat­ar­is­inn H&M opni í ágúst. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent