Heimsins stærsta rafhlaða fyrir heilt fylki í Ástralíu

Elon Musk lofar að smíða heimsins stærstu rafhlöðu áður en árið er úti og tengja það við raforkukerfi heils fylkis í Ástralíu.

Elon Musk er forstjóri fyrirtækisins Tesla.
Auglýsing

Banda­ríski raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla hygg­ist smíða heims­ins stærstu raf­hlöðu og tengja raf­kerfi Suð­ur­-Ástra­ílíu, heils fylkis í sam­bands­rík­inu Ástr­al­íu.

Yfir­völd í fylk­inu und­ir­rit­uðu samn­ing við Elon Musk, for­stjóra Tesla, um þetta á föstu­dag. Frá þessu er greint á vef breska rík­is­út­varps­ins, BBC.

Raf­hlaðan á að verja íbúa og fyr­ir­tæki fyrir orku­kreppu í raf­orku­kerfi fylk­is­ins. Raf­magns­leysi hefur verið vanda­mál í Suð­ur­-Ástr­alíu vegna auk­inna öfga í veðri og krapp­ari storma sem ganga yfir Ástr­al­íu.

Musk hefur lofað því að ef Tesla tekst ekki að smíða raf­hlöð­una og tengja hana raf­orku­kerf­inu á 100 dögum þá muni Suð­ur­-Ástr­alía fá raf­hlöð­una frítt. 100 megawatta raf­hlaða, sem annar 129 megawatt­stund­um, ætti þess vegna að vera til­búin á þessu ári.

Elon Musk og Jay Weatherill tilkynntu áformin á föstudag.Stærsta raf­hlaða sem smíðuð hefur verið í dag er aðeins 30 megawött svo stökkið er stórt fyrir Tesla. „Sjálf­sagt er fólgin í þessu ein­hver áhætta, því þetta verður stærsta raf­hlöðu­teng­ing í heimi og með nokkrum mun,“ sagði Musk í Adelaide, höf­uð­borg Suð­ur­-Ástr­al­íu, á föstu­dag.

Raf­hlaðan verður tengd vind­orku­garði og hýsir orku þaðan allan sól­ar­hring­inn. Við raf­magns­leysi eða þegar álagið á raf­orku­kerfið er meira en vana­lega mun raf­hlaðan geta staðið straum af auk­inni raf­orku­eft­ir­spurn.

Fylk­is­stjór­inn Jay Weather­ill segir raf­hlöð­una eiga eftir að gjör­breyta því hvernig end­ur­nýj­an­leg orka er nýtt. „Þetta mun jafn­framt koma stöð­ug­leika á raf­orku­kerfi Suð­ur­-Ástr­al­íu. Í fram­hald­inu mun þessi aðgerð setja þrýst­ing á lækkun mark­aðsvirð­is,“ sagði Weather­ill.

Auglýsing

Tesla hraðar raf­hlöðu­þró­un­inni

Raf­bíla­fyr­ir­tækið Tesla hefur á und­an­förnum miss­erum hraðað þróun raf­hlaða sinna með­fram fram­leiðslu raf­bíla. Með Tesla-­fyr­ir­tæk­inu er Elon Musk frum­kvöð­ull í fram­leiðslu raf­bíla og hefur sett mik­inn þrýst­ing á hinn rót­gróna bíla­markað um orku­skipti.

Einka­leyfi Tesla á upp­finn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins tengdum raf­bíl­unum hafa verið gefin frjáls. Musk viðrist þess vegna reka raf­bíla­fyr­ir­tækið Tesla af meiri hug­sjón en gróða­von.

Nýverið til­kynnti sænski bíla­fram­leið­and­inn Volvo að fyr­ir­tækið myndi hætta þróun og smíði bíla sem ein­göngu væru drifnir sprengi­hreyfli árið 2019. Allir bílar fyr­ir­tæk­is­ins verða þá að fullu eða að hluta knúnir raf­magni sem geymt er í raf­hlöð­um.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Volvo segir að á árunum 2019 til 2021 muni fyr­ir­tækið kynna fimm nýja raf­bíla sem verða að öllu leyti knúnir raf­magni og tryggja að allar aðrar gerðir nýrra Vol­vo-bíla verði búnir blend­ings­vél.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent