Var lofað upplýsingum um Hillary Clinton

Trump yngri, Kushner og Manaford hittu rússneskan lögmann sem lofaði upplýsingum sem kæmu höggi á Hillary Clinton í aðdraganda kosninga.

Donald Trump yngri, sonur forseta Bandaríkjanna, í Trump-turni í New York í Bandaríkjunum.
Donald Trump yngri, sonur forseta Bandaríkjanna, í Trump-turni í New York í Bandaríkjunum.
Auglýsing

Elsti sonur Don­alds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, Don­ald Trump yngri, var lofað upp­lýs­ingum sem mundu koma höggi á Hill­ary Clint­on, fyrir fund með rúss­neskum lög­manni með tengsl í Kreml í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í fyrra.

Fund­inn sátu Trump yngri, Paul J. Mana­ford kosn­inga­stjóri Trumps og tengda­sonur for­set­ans, Jared Kus­hner. Mana­ford og Kus­hner greindu nýlega frá því að fund­ur­inn hafi farið fram.

Banda­ríska dag­blaðið The New York Times hefur þetta eftir heim­ild­ar­mönnum innan Hvíta húss­ins og fleirum sem höfðu vit­neskju um fund­inn. Blaðið greindi frá því á laug­ar­dag að fund­ur­inn með rúss­neska lög­mann­inum hefði farið fram en hafði þá ekki upp­lýs­ingar um til­drög hans. Heim­ild­ar­menn gáfu sig fram við blaðið í kjöl­far þeirrar frétt­ar.

Auglýsing

Fund­ur­inn fór fram í Trump-turni í New York 9. júní 2016, tveimur vikum eftir að Don­ald Trump hafði tryggt sér útnefn­ingu Repúblikana­flokks­ins fyrir for­seta­kosn­ing­arn­ar. Efni fund­ar­ins er talið vera lyk­il­at­riði í svar­inu við meg­in­spurn­ingum þeirra sem rann­saka meint tengsl kosn­inga­bar­áttu Trumps við Rússa. New York Times segir hér vera komna fyrstu opin­beru vís­bend­ing­una um að í það minnsta ein­hverjir viðriðnir kosn­inga­bar­átt­una hafi verið ginn­keyptir fyrir hjálp frá Rúss­landi.

Ekki er víst að rúss­neski lög­mað­ur­inn, Natalia Ves­elnit­ska­ya, hafi reitt fram upp­lýs­ingar um Clint­on.

Í yfir­lýs­ingu sem Trump yngri sendi frá sér í gær lýsir hann því sem svo að Ves­elnit­skaya hafi sagst hafa upp­lýs­ingar um að ein­stak­lingar tengdir Rúss­landi hafi verið að styrkja kosn­inga­bar­áttu Clinton og Demókra­ta­flokk­inn. „Orð hennar voru á reiki, óljós og stóð­ust ekki skoð­un,“ segir Trump yngri og bætir við að engin gögn sem studdu orð lög­manns­ins hafi verið borin á borð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent