Óska eftir tillögum til aðgerða í loftslagsmálum

Verkefnastjórn um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum leitar til almennings um tillögur til aðgerða.

Loftslagsprófíll Íslands er frábrugðin öðrum löndum vegna þess hversu lítið útstreymi er frá vegna orkuframleiðslu. Björt Ólafsdóttir er umhverfisráðherra.
Loftslagsprófíll Íslands er frábrugðin öðrum löndum vegna þess hversu lítið útstreymi er frá vegna orkuframleiðslu. Björt Ólafsdóttir er umhverfisráðherra.
Auglýsing

Umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytið hvetur almenn­ing til þess að senda inn hug­myndir og til­lögur að aðgerðum í lofts­lags­mál­um. Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Nú er unnið að nýrri aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum sem á að liggja fyrir í lok þessa árs. Sú aðgerð­ar­á­ætlun sem er í gildi var unnin árið 2009 og tók gildi árið 2010.

Nýja aðgerða­á­ætl­unin á að fjalla um þær leiðir sem Ísland getur farið til þess að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart Par­ís­ar­samn­ingnum í lofts­lags­mál­um.

Mark­mið Íslands, sem íslensk stjórn­völd sendu inn til lofts­lags­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna í aðdrag­anda Par­ís­ar­fund­ar­ins 2015, er að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 1990.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands sem kynnt var síð­ast­lið­inn vetur kemur fram að Ísland er fjarri því að ná þessum mark­mið­um. Þvert á móti hefur útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist á árunum síðan 1990.

Áður en mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins taka við þá gilda skuld­bind­ingar sem Ísland hefur geng­ist undir á seinna skuld­bind­ing­ar­tíma­bili Kýótó-­bók­un­ar­innr svoköll­uðu. Ísland þarf að draga úr losun um 20 pró­sent til árs­ins 2020. Ljóst er að þau mark­mið muni ekki takast.

Auglýsing

Óska eftir til­lögum til aðgerða

Umhverf­is­ráðu­neytið óskar nú eftir hug­myndum frá almenn­ingi um aðgerðir sem ráð­ast má í svo að lofts­lags­mark­miðin náist. Senda má til­lög­urnar á veffangið lofts­lag@u­ar.is.

Til­lög­urnar verða birtar jafn óðum á vef­svæð­inu co2.is, þar sem einnig verður hægt að finna ýmsar upp­lýs­ingar sem tengj­ast vinn­unni við aðgerða­á­ætl­un­ina.

Verk­efna­stjórn aðgerða­á­ætl­un­ar­innar var skipuð af sex ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands í vor, eftir að þeir skrif­uðu undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um gerð áætl­un­ar­inn­ar. Þetta er í fyrsta sinn sem aðgerða­á­ætlun á borð við þessa er unnin þvert á ráðu­neyti. Það er auð­vitað gert vegna þess að lofts­lags­mál eru ekki aðeins umhverf­is­mál, heldur einnig mik­il­vægt efna­hags­legt mál­efni sem og félags­legt.

Miklu munar um stór­iðju

Þegar rýnt er í lofts­lags­prófíl Íslands sést að mestu munar um stór­iðju hér á landi. Um 45 pró­sent allrar los­un­ar, sé land­notkun (LULUCF) und­an­skil­in, má rekja til iðn­að­ar­fram­leiðslu. Það er ein­kenni á losun frá Íslandi að eitt verk­efni getur haft mikil áhrif á heild­ar­losun á árs­grund­velli.

Ástæða þessa er smæð íslenska hag­­kerf­is­ins. Eitt meng­andi álver til við­­bótar í kerfið getur aukið heild­­ar­losun frá Íslandi um meira en 15 pró­­sent, að því er kemur fram í los­un­­ar­­bók­haldi Umhverf­is­­stofn­un­­ar.

Það munar miklu um eitt álver á Íslandi. Samgöngur eru einnig stór þáttur í útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Þann geira er ábatasamast að ráðst á og minnka.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands sem kynnt var í vetur segir að ábata­mestu aðgerð­irnar fel­ast í orku­skiptum í sam­göng­um. Mestu mundi muna um raf­bíla­væð­ingu íslenska bíla­flot­ans.

Los­un­ar­bók­hald Íslands er frá­brugðið bók­höldum að því leyti að hér er ekki mik­ill útblástur frá orku­fram­leiðslu. Ísland hefur „for­skot“ í þeim efn­um, ef svo má að orði kom­ast. Nærri því 80 pró­­sent útstreymis frá því sem heitir orku­­geiri (e. Energy sect­­or) í alþjóð­­legum sam­an­­burði er þess vegna frá sam­­göng­­um. Þar ber helst að nefna bíla­um­­ferð og fiski­­skipa­­flot­ann sem gengur meira og minna fyrir jarð­efna­elds­­neyti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent