Trump setur sinn mann yfir eftirliti með Wall Street

Bandaríkjaforseti er nú sagður vera að setja fulltrúa Wall Street yfir regluverki fjármálamarkaðarins innan Seðlabanka Bandaríkjanna.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Auglýsing

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, er sagður lík­legur til að skipa Randel Quarles sem nýjan yfir­mann eft­ir­lits með stórum bönkum á Wall Street, að því er Wall Street Journal greinir frá í dag. Quarles hefur verið meðal innsta kjarna í bak­landi Trumps, og hefur starfað sem fjár­fest­inga­stjóri hjá sjóðum á Wall Street. Í seinni tíð hefur fer­ill hans að mestu snú­ist um rekstur The Cynos­ure Group, sjóðs sem hann stofn­aði sjálf­ur. 

Trump seg­ist ætla að „af­reglu­væða“ fjár­mála­kerf­ið, það er minnka eft­ir­lits­hlut­verk hins opin­bera, „stór­kost­lega“ (massi­ve). Seðla­banki Banda­ríkj­anna, undir stjórn Janet Yellen, hefur talað gegn því að slakað verði á eft­ir­liti, og hefur bent á að fjár­mála­kerfið sé sterkara nú en áður og efna­hags­líf Banda­ríkj­anna hafi notið góðs af betra eft­ir­liti. Gæði lána séu meiri en þau voru, og bank­arnir hafi stað­ist nákvæm próf Seðla­bank­ans. 

Trump og helsta bak­land hans er á allt annarri skoðun og lof­aði Trump því í kosn­inga­bar­átt­unni, að það yrði eitt hans fyrsta verk, að ná skera niður eft­ir­lit með bönkum á Wall Street, en ekki eru nema níu ár síðan Seðla­banki Banda­ríkj­anna og rík­is­sjóður björg­uðu stærstu bönkum lands­ins - nær öllum að tölu - með tæp­lega eitt þús­und millj­arða Banda­ríkja­dala björg­un­ar­lán­um, til að koma í veg fyrir að neyð­ar­á­stand skap­að­ist á fjár­mála­mark­aði og í heim­inum öll­u­m. 

Auglýsing

Í bók Ben Bern­anke, fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóra Banda­ríkj­anna, A Courage To Act, segir hann að það hafi munað einum sól­ar­hring að sam­bæri­legt ástand hefði skap­ast í Banda­ríkj­un­um, og varð raunin í Krepp­unni miklu á þriðja og fjórða ára­tug síð­ustu ald­ar. Þá rauk atvinnu­leysi upp í 30 pró­sent og neyð­ar­á­stand skap­að­ist með fjölda­gjald­þrotum um allt land, og raunar heim­inn sömu­leið­is. 

Ekki hefur verið lögð fram ítar­leg áætlun um hvernig afreglu­væð­ingin mun birtast, en fast­lega er gert ráð fyrir að sú áætlun muni koma fram síðar á þessu ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent