Velta í byggingastarfsemi jókst um þriðjung milli ára

Nýjustu tölur Hagstofu benda til umfangsmikillar hækkunar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð á síðustu mánuðum. Á sama tíma minnkaði velta í sjávarútveginum um 15%.

Mikil gróska virðist vera í byggingarframkvæmdum.
Mikil gróska virðist vera í byggingarframkvæmdum.
Auglýsing

Velta í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð hefur stór­auk­ist á síð­ustu miss­erum, en hún mæld­ist 33,1% hærri milli maí­mán­aða 2016 og 2017 miðað við sama tíma­bil ári á und­an. Á sama tíma minnk­aði velta sjáv­ar­út­vegs­ins um 15,7%. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stofu Íslands.

Hag­stofa birti í dag tölur um veltu í virð­is­auka­skatts­skyldri starf­semi, en þar kemur fram að heild­ar­veltan jókst um 3,3% á tíma­bil­inu maí 2016 til og með apríl 2017, miðað við síð­ustu tólf mán­uði þar á und­an. Mikið af þess­ari hækkun má hins vegar útskýra með breyt­ingar á skatta­lög­gjöf, en í árs­byrjun 2016 varð starf­semi far­þega­flutn­inga og ferða­skrif­stofa virð­is­auka­skatts­skyld.

Ef tekið er til­lit til laga­breyt­ing­anna var mesta hækk­unin milli tíma­bila, hlut­falls­lega og í krónu­töl­um, í liðnum „bygg­ing­ar­starf­semi, mann­virkja­gerð, námu­gröftur og vinnsla hrá­efna úr jörð­u.“ Milli maí­mán­aða 2016 og 2017 nam velta undir þeim lið 296 millj­örðum og hækk­aði um 73 millj­arða milli tíma­bila, eða um 33,1%. Á vef Hag­stofu er því haldið fram að hluti vaxt­ar­ins gæti verið til­kom­inn vegna upp­gangs í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu.

Auglýsing

Sam­hliða aukn­ingu í veltu hjá ferða­þjón­ustu og í bygg­ing­ar­iðn­aði minnk­aði umfang sjáv­ar­út­vegs­ins, en velta grein­ar­innar lækk­aði um 15,7% á við­mið­un­ar­tíma­bil­inu. Lækk­unin er fyrst og fremst talin stafa af mik­illi styrk­ingu krón­unnar og nýaf­stöðnu verk­falli sjó­manna.

Virðisaukaskattsvelta sjávarútvegs og byggingariðnaðar tvö síðustu viðmiðunartímabil Hagstofu.

Mikil gróska virð­ist vera í bygg­ing­ar­iðn­aði, en Kjarn­inn fjall­aði fyrir stuttu um 16% fjölgun laun­þega í atvinnu­grein­inni. Einnig birt­ist hér aðsend grein Ing­ólfs Bend­er, hag­fræð­ings Sam­taka Iðn­að­ar­ins, en í henni bendir Ingólfur á fjölgun laun­þega í grein­inni frá hruni. Sam­kvæmt honum hefur þeim fjölgað um 2.000 á síð­ustu sjö árum og eru þeir nú 17.000 tals­ins. Þannig er eitt af hverjum tíu störfum sem skap­ast hafa á síð­ustu árum í fram­leiðslu­iðn­aði.

Hafa ber í huga að umræddar tölur Hag­stof­unnar ná aðeins til virð­is­auka­skatts­skyldra atvinnu­greina og því er ýmis þjón­usta ekki talin með.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent