Félag Ólafs gæti innleyst 800 milljóna hagnað

Fréttablaðið og Vísir hafa birt ítarlegar upplýsingar um þá sem nýttu sér fjárfestingaleið Seðlabankans.

Ólafur Ólafsson
Auglýsing

„Fé­lag í eigu Ólafs Ólafs­son­ar, aðal­eig­anda Sam­skipa, og Hjör­leifs Jak­obs­sonar fjár­festis kom með tæp­lega tvo millj­arða króna til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands í des­em­ber 2012. Miðað við núver­andi gengi gæti félagið inn­leyst um 809 millj­ónir í geng­is­hagn­að, sam­kvæmt útreikn­ingum Mark­að­ar­ins, en fjár­mun­irnir verða lausir til ráð­stöf­unar í lok árs­ins. Árleg ávöxtun yrð­i þá 13,7 pró­sent. Við bæt­ist síð­an ­á­vöxt­unin af sjálfri fjár­fest­ing­unn­i.“

Þetta kemur fram í Mark­aðn­um, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti, í dag. Upp­lýs­ingar um hverjir það voru sem nýttu sér fjá­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands eru til umfjöll­unar í blað­inu í dag.

Umrætt félag, Arius ehf., tók þátt í útboði fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar í lok árs 2012 og fékk þannig ríf­lega tutt­ugu pró­senta afslátt af krón­un­um. „Voru fjár­mun­irnir einkum nýttir til fjár­fest­inga í Sam­skipum og fast­eigna­fé­lag­inu Fest­ingu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem feng­ust frá Ólafi,“ segir í frétt Mark­að­ar­ins.

Ólafur hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm fyrir sinn þátt í Al-T­hani mál­inu svo­kall­aða.

Auglýsing

Arius er dótt­ur­fé­lag hol­lenska félags­ins SMT Partners B.V. sem er í átta­tíu pró­senta eigu Ólafs og tutt­ugu pró­senta eigu Hjör­leifs.

„Fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans gekk út á að fjár­festar komu með gjald­eyri til lands­ins og skiptu honum fyrir krónur og fjár­festu hér til lengri tíma. Gul­rótin var að þeir fengu um tutt­ugu pró­senta afslátt af krón­un­um. Þeir fjár­festar sem komu með evrur í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina á fyrri helm­ingi 2012 geta nú inn­leyst sam­an­lagt rúma tutt­ugu millj­arða í geng­is­hagn­að, sam­kvæmt útreikn­ingum Mark­að­ar­ins. Ávöxt­unin nemur fjórtán pró­sentum á árs­grund­velli. Til við­bótar við geng­is­hagn­að­inn bæt­ist síðan ávöxtun af fjár­fest­ing­unni sjálfri, en hún hefur verið afar ríku­leg á und­an­förnum árum. Þannig gæti fjár­festir sem kom með evrur til lands­ins í fyrsta útboði fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar, í febr­úar 2012, og keypti sér fimm­tíu millj­óna króna fast­eign í miðbæ Reykja­víkur nú inn­leyst tæp­lega 58 millj­óna hagn­að. Árleg ávöxtun nemur í því til­viki 38,9 pró­sent­u­m,“ segir í frétt Mark­að­ar­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent