Menntun verði metin til fjár

Í minnisblaði sem forysta BHM sendi til Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra, er fjallað um launaþróun hjá félögum BHM. Kjaraviðræður eru framundan.

1-mai_14079769422_o.jpg
Auglýsing

Grund­vall­ar­krafa BHM og aðild­ar­fé­laga er sú að menntun verði metin til fjár, í kom­andi kjara­við­ræð­um. Þetta er meðal þess sem kemur minn­is­blaði BHM sem sent var til Bjarna Bene­dikts­son­ar, for­sæt­is­ráð­herra, 22. júní síð­ast­lið­inn, en það er birt hér með frétt­inn­i. 

Í minn­is­blað­inu er rakin staðan sem nú blasir við í kjara­mál­u­m. Í kjöl­far setn­ingar laga nr. 31/2015 um kjara­mál til­tek­inna stétt­ar­fé­laga innan BHM var ­sér­stökum gerð­ar­dómi falið að ákvarða um kaup og kjör félags­manna um leið og bund­inn var endi á verk­falls­að­gerðir átján aðild­ar­fé­laga BHM. 

Ákvarð­anir gerð­ar­dóms eru bind­andi sem kjara­samn­ingur á milli þess­ara félaga og rík­is­ins þann tíma sem gerð­ar­dóm­ur­inn kvað á um en hann gildir til 31. ágúst næst­kom­andi. Þá verða lausir kjara­samn­ingar 17 aðild­ar­fé­laga BHM við rík­ið, að því er segir í minn­is­blað­inu.

Auglýsing

Í minn­is­blað­inu er fjallað um kom­andi kjara­við­ræð­ur, og helstu áherslu­mál BHM í við­ræð­un­um. 

Innan BHM und­ir­búa aðild­ar­fé­lögin 17 kom­andi kjara­samn­inga­við­ræður nú af kappi. Kröfu­gerð liggur ekki fyr­ir, en í minn­is­blað­inu eru samt rakin lág­marks­mark­mið sem þurfi að tryggja til að ná ásætt­an­legri nið­ur­stöð­u. 

Fyrir utan kjara­samn­ings­bundnar hækk­anir blasir við að í við­ræð­unum þarf að tryggja að lág­marki eft­ir­far­and­i: 

  • Að allir félags­menn BHM-17 sem rétt eiga á launa­hækkun sam­kvæmt mennt­un­ar­á­kvæð­i ­gerð­ar­dóms­fái hana. 

  • Að sér­kröfur aðild­ar­fé­lag­anna kom­ist á dag­skrá. 

  • Að launa­setn­ing félags­manna aðild­ar­fé­laga BHM hjá fjöl­mörgum rík­is­stofn­un­um, ekki síst í heil­brigð­is- og mennt­un­ar­geir­an­um, verði end­ur­skoð­uð. Sér­stak­lega þarf að huga að ­launa­setn­ingu félags­manna aðild­ar­fé­laga BHM á Land­spít­al­an­um. 

  • Eft­ir­mál sam­komu­lags um jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda á milli mark­aða eru mörg og mik­il­væg. ­Staða nýrra opin­berra starfs­manna í nýju líf­eyr­is­kerfi er þar for­gangs­mál. 

  • Sam­komu­laga Banda­lags háskóla­manna, BSRB og Kenn­ara­sam­bands Íslands, ann­ars veg­ar, og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, f.h. rík­is­sjóðs, og Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, hins ­veg­ar, um breyt­ingar á skipan líf­eyr­is­mála opin­berra starfs­manna, frá 19. sept­em­ber, þarf að virða. 

„Starf nefndar um launa­jöfnun á milli mark­aða, sbr. 7. gr. sam­komu­lags­ins, þarf að vera í sam­ræmi við texta grein­ar­innar en þar seg­ir: Sam­ráðs­hóp­ur­inn skal setj­a fram til­lögur að áætlun um hvernig mark­miðum um jöfnun launa skuli náð með útfærslu í kjara­samn­ingum á 6-10 árum. Hóp­ur­inn skal einnig fylgja eftir fram­kvæmd­inni. Inn­an­ ­sam­ráðs­hóps­ins eru aðilar ekki á einu máli um hvert hlut­verk hans sé og það þarf að skýra,“ segir í minn­is­blað­inu.

Þá segir í minn­is­blað­inu, að tæpum tveimur árum eftir úrskurð gerð­ar­dóms og rúmu einu ári eftir að mennt­un­ar­á­kvæð­i hans tók gildi sé staða aðild­ar­fé­lag­anna 17 innan BHM sú, að þorri félags­manna þeirra hafi enn ekki fengið launa­hækkun byggða á mennt­un­ar­á­kvæð­inu en stéttir utan BHM og þær sem kjara­ráð úrskurðar um hafa allar notið þess án til­lits til mennt­un­ar.

Minn­is­blaðið er hér með­fylgj­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent