Tveir ráðherrar hætta í ríkisstjórn Svíþjóðar

Stefan Löfven hefur ákveðið að stokka upp í ríkisstjórn sinni, en tveir ráðherraar hætta á meðan fjórir nýir koma í þeirra stað.

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, boðaði til blaðamannafundar í morgun.
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, boðaði til blaðamannafundar í morgun.
Auglýsing

Stefan Löf­ven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóð­ar, segir að tveir ráð­herrar munu víkja úr emb­ætti á meðan fjórir nýir koma í stað­inn.Þetta kemur fram á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar fyrr í dag í Ros­en­bad-­hús­inu í Stokk­hólmi.

Frá­far­andi ráð­herrar eru þeir And­ers Ygemann inn­an­rík­is­ráð­herra og Anna Johans­son inn­við­a­ráð­herra. 

Í stað þeirra verður Heléne Fritzon inn­flytj­enda­ráð­herra, Morgan Johans­son inn­an­rík­is­ráð­herra og Tomas Ener­oth inn­við­a­ráð­herra. Einnig bæt­ist Annika Strand­häll við sem félags­mála­ráð­herra.

Búist var við því að rík­is­stjórnin myndi segja af sér á blaða­manna­fundi í dag, en Löf­ven sagð­ist frekar velja þennan kost þar sem hann vildi ekki senda Sví­þjóð í stjórn­ar­kreppu.

Auglýsing

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um stjórn­ar­krepp­una í Sví­þjóð und­an­farna daga, en hún stafar af meintu aðgerð­ar­leysi Peter Hultqvist varn­ar­mála­ráð­herra, And­ers Ygemann inn­an­rík­is­ráð­herra og Anna Johans­son inn­við­a­ráð­herra þegar þau komust að því að Sam­göngu­stofa Sví­þjóðar hafði lekið per­sónu­upp­lýs­ingum og hern­að­ar­leynd­ar­málum til verk­taka sinna í stórum stíl.

Á blaða­manna­fundi á mánu­dag­inn sagði Stefan Löf­ven að skaði vegna máls­ins hafi verið lág­mark­aður og hann bæri enn fullt traust til allra í sinni rík­is­stjórn. Í gær lögðu leið­togar innan stjórn­ar­and­stöðu­blokk­ar­innar Alli­an­sen svo fram van­traust­s­til­lögu á alla þrjá ráð­herrana sem töld­ust tengj­ast þessu á blaða­manna­fundi, en í kjöl­farið fund­aði rík­is­stjórnin saman í þrjá tíma fyrir luktum dyr­um. Að fund­inum loknum boð­aði hún til blaða­manna­fundar í dag, en heim­ild­ar­menn SVT töldu þá senni­legt að hún myndi segja af sér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent