McCain bjargaði Obamacare úr klóm repúblikana

Enn berjast repúblikanar við að koma kosningaloforðum sínum í gegnum þingið. Það tókst ekki í gær og nú verður gert hlé á tilraununum.

Auglýsing
John McCain er fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins. Hann tapaði í kosningum gegn Barack Obama árið 2008. Hann gekkst nýverið undir aðgerð vegna heilaæxlis og skartar stórum skurði fyrir ofan vinstra auga.
John McCain er fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins. Hann tapaði í kosningum gegn Barack Obama árið 2008. Hann gekkst nýverið undir aðgerð vegna heilaæxlis og skartar stórum skurði fyrir ofan vinstra auga.

Öld­unga­deild banda­ríska þings­ins hafn­aði enn á ný til­lögum for­ystu Repúblikana­flokks­ins um að afnema heil­brigð­is­trygg­inga­kerfið sem tók gildi í for­seta­tíð Baracks Obama, Obamacare.

Þing­menn greiddu í þetta skipti atkvæði um útvatn­aða útgáfu af afnámi Obamacare en fimm sinnum hefur þingið hafnað til­lögum um annað hvort afnám Obamacare og inn­leið­ingu nýrra heil­brigð­islaga – Trumpcare – eða ein­göngu afnám Obamacare.

Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, mætti í þing­sal til þess að greiða það sem átti að verða úrslita­at­kvæði atkvæða­greiðsl­unn­ar. Það varð hins vegar að fýlu­ferð því John McCain, þing­maður frá Arizona og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi repúblikana, ákvað að greiða atkvæði gegn nýj­ustu til­lög­unni.

Auglýsing

McCain gekkst nýverið undir aðgerð eftir að hafa greinst með heila­æxli. Hann hefur hins vegar verið í Was­hington þessa vik­una vegna þess að „hann ætl­aði ekki að láta atkvæði sitt falla dautt“ vegna veik­inda sinna. Hann útskýrði afstöðu sína svona á Twitt­er:



Af öllum 101 atkvæð­unum sem greidd voru 49 repúblikanar sem greiddu atkvæði með útvötn­uðu afnámi Obamacare en sam­tals 51 sem kusu gegn til­lög­unni. Þar af voru þrír þing­menn Repúblikana­flokks­ins.

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, skrif­aði á Twitter í kjöl­far atkvæða­greiðsl­unn­ar:



Mik­ill skellur fyrir Mitch McConn­ell

Leið­togi repúblik­ana á banda­ríska þing­inu, Mitch McConn­ell, aflýsti þing­fundi sem átti að halda í dag eftir að úrslit atkvæða­greiðsl­unnar voru ljós í nótt. Talið er að nú sé komið á leið­ar­enda her­farar repúblik­ana í þing­inu gegn Obamacare, í það minnsta í bili, enda hafa til­lögur flokks­ins verið felldar sex sinn­um.

Repúblikana­­flokk­­ur­inn og full­­trúar hans hafa lofað því í sjö ár, eða síðan Obamacare var sam­­þykkt og leitt í lög, að afnema lögin og fá ný stað­­fest þegar flokk­­ur­inn stjórn­­aði öllum stofn­unum lög­­gjaf­­ar- og fram­­kvæmda­­valds­ins.

Það gerð­ist svo í fyrsta sinn á þessum sjö árum í jan­úar að for­­seti úr röðum repúblik­ana tók við völdum í Hvíta hús­inu. Hann hefur hins vegar sýnt að hann hafi ein­fald­­lega ekki nógu yfir­­­grips­­mikla þekk­ingu á gangi mála í þing­inu – hvað þá á heil­brigð­is­­trygg­inga­­kerf­inu – til þess að verða öfl­­ugur frum­­mæl­andi nýrra heil­brigð­islaga.

Þegar hefur verið reynt að smíða og leggja til nýtt heil­brigð­is­­kerfi sem kæmi í stað­inn fyrir Obamacare; Trumpcare. Því kerfi hefur verið hafnað og öllum útfærslum á því enda þóttu þær til­­lögur lélegar og inn­­an­tóm­­ar. Þing­­menn úr báðum flokkum fengu að heyra það í kjör­­dæmum sín­­um. Þess vegna var ákveðið að láta á það reyna að efna helm­ing­inn af lof­orð­inu og afnema lög­­­gjöf Obama. Það hefur ekki tek­ist þrátt fyrir ítrek­aðar til­raun­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent