Jón Steinar: Neyðarlögin tóku fé af einum hópi til að bjarga öðrum

Fyrrverandi Hæstaréttardómari segir engin rök fyrir því að neyðarlögin hafi ekki verið eignaupptaka þrátt fyrir að dómstólar hafi talið þau standast stjórnarskrá. Hann veltir fyrir sér hvort komist hafi verið að „æskilegri“ niðurstöðu án rökstuðnings.

Jón Steinar Gunnlaugsson.
Jón Steinar Gunnlaugsson.
Auglýsing

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, segir að neyð­ar­lögin sem sett hafi verið á Íslandi 6. októ­ber 2008 hafi verið eigna­upp­taka á eignum skulda­bréfa­eig­enda. Hann segir nið­ur­stöðu Hæsta­réttar frá því í októ­ber 2011, þar sem úrskurðað var að neyð­ar­lögin stæð­ust eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár, ekki vera rök­studda. Þetta kemur fram í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Jón Steinar sat í Hæsta­rétti á þeim tíma sem ofan­greint má, var tekið fyrir og skil­aði sér­at­kvæði sem var á skjön við nið­ur­stöðu meiri­hluta dóm­stóls­ins.

Með setn­ingu neyð­ar­lag­anna voru inn­stæður gerðar að for­gangs­kröfum og leik­reglum þar með breytt eftir á. Það bitn­aði mjög hart á skulda­bréfa­eig­endum gömlu bank­anna sem töp­uðu gríð­ar­legum fjár­hæðum á setn­ingu þeirra. Jón Steinar skrifar grein­ina í dag til að svara pistli sem Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor skrif­aði í sama blað um liðna helgi, og fjall­aði um neyð­ar­lána­setn­ing­una. Í pistli sínum reyndi Hannes að rök­styðja setn­ingu neyð­ar­laga með vísun í kaþ­ólska heim­speki og lög­málið um tvennar afleið­ing­ar. Þar kemur einnig fram að í nýrri bók Ásgeirs Jóns­sonar og Hersis Sig­ur­geirs­sonar sé sagt frá því að það hafi færst um tíu millj­arðar evra með neyð­ar­lög­unum frá skulda­bréfa­eig­endum til inn­stæðu­eig­enda.

Jón Steinar segir neyð­ar­laga­setn­ing­una hins vegar vera aft­ur­virka eigna­upp­töku. Hann spyr hvort það hefði ekki verið hægt að vernda inn­lán lands­manna og afla fjár til þess með almenn­ari hætti en þeim að sækja það til afmark­aðs hóps manna. Það sé álita­efnið í mál­inu. „Svar er hvorki að finna í atkvæði meiri­hluta dóm­enda né hug­leið­ingu Hann­es­ar. Ef þessi rök eru ekki til liggur málið þannig fyrir að fé var tekið með valdi af afmörk­uðum hópi manna til að bjarga öðr­um. Fyrir slíka hátt­semi er fjár­töku­mönnum stundum refs­að!

Auglýsing

Dómar byggj­ast á beit­ingu rétt­ar­heim­ilda. Dóms­nið­ur­staða verður alltaf að njóta full­nægj­andi rök­stuðn­ings fyrir því að rétt­ar­heim­ildir leiði til nið­ur­stöð­unn­ar. Ef dóm­arar finna ekki gildan rök­stuðn­ing fyrir nið­ur­stöðu sinni er það yfir­leitt vegna þess að hann er ekki til. Þá kann það að ger­ast að kom­ist sé að „æski­legri“ dóms­nið­ur­stöðu án rök­stuðn­ings. Ætli þetta hafi verið þannig dóm­ur? Allur almenn­ingur á Íslandi fagn­aði að minnsta kosti nið­ur­stöð­unni þó að rökin vant­aði. Kannski viljum við Íslend­ingar helst að dóm­stólar lands­ins dæmi eftir ein­hverju öðru en gildum laga­reglum ef það hentar okk­ur?“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent