Verð á hótelgistingu hækkað um meira en 60 prósent á tveimur árum

Verðhækkanir á gistingu hérlendis hafa hækkað langt umfram styrkingu krónu á undanförnum árum þegar þær eru umreiknaðar í erlenda mynt. Ferðamenn bregðast við með því að dvelja hérlendis skemur.

7DM_9653_raw_1783.JPG
Auglýsing

Verð á hót­elgist­ingu hefur hækkað um meira en 60 pró­sent hér­lendis í erlendri mynt á tveimur árum. Sú hækkun er vel umfram styrk­ingu á gengi krón­unnar og því útskýrir hún hækk­un­ina ekki nema að hluta. Stóran hluta hækk­unar megi rekja til hærri gjald­skrár hót­ela og hót­elgist­ing hækkað langt umfram þróun verð­lags. Þetta er haft eftir Gústaf Stein­gríms­syni, hag­fræð­ingi í hag­fræði­deild Lands­bank­ans, í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir hann að stór­aukin eft­ir­spurn ferða­manna eftir gisti­rými sé senni­leg­asta ástæða þess hve mikið þjón­usta hót­ela og gisti­heim­ila hafi hækkað í krónum talið á und­an­förnum árum.„­Menn virð­ast hafa verið í það góðri stöðu, og gistinýt­ingin er það há, að þeir hafa getað leyft sér að hækka verð­ið,“ segir Gústaf í sam­tali við Frétta­blað­ið. Hann nefnir aukin launa­kostnað sem aðra breytu sem gæti skýrt miklar hækk­an­ir.

Auglýsing

Einnig er fjallað um málið í Við­skipta­blað­inu í dag. Þar er bent á að vegna meiri fjölg­unar erlendra ferða­manna en sem nemur fjölgun gistin­átta hefur gistin­átta­fjöld­inn á hvern ferða­mann hér­lendis dreg­ist tals­vert sam­an. Fjöldi gistin­átta á hvern ferða­mann hafi numið 1,7 í júní og dróst saman um ríf­lega níu pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra. Gústaf er einnig við­mæl­andi í umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins og segir þar að gistinætur á mann hafi verið að drag­ast saman í fjórtán mán­uði í röð. „Með­al­tal gistin­átta hefur verið tals­vert lægra á fyrstu sex mán­uðum þessa árs en á sama tíma í fyrra.“ segir Gúst­af. Hann segir verð­þróun á gist­ingu í erlendri mynt skipa þar mestu. Verðið á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sé þriðj­ungi hærra en á sama tíma í fyrra mælt í erlendri mynt og 62 pró­sent hærra en á sama tíma­bili árið 2015. Áhrif frá heimagist­ingu (Air­bnb) gætu einnig spilað inn í. Ferða­menn hafi mætt styrk­ingu krón­unnar með því að draga úr dval­ar­lengd í stað þess að hætta við að koma til lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent