Segir ríkisstjórnina ekki færa um að falla þar sem hún standi ekki fyrir neitt

Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir ríkisstjórnina sem flokkurinn leiðir harðlega. Hann segir ríkisstjórn sem standi ekki fyrir neitt eigi í erfiðleikum með að finna sér mál til að falla á.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Auglýsing

Sitj­andi rík­is­stjórn er ekki fær um að falla vegna þess að hún stendur ekki fyrir neitt. Þetta segir í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins sem er skrifað á ábyrgð Dav­íðs Odds­son­ar, fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi rit­stjóra blaðs­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leiðir þá rík­is­stjórn sem nú situr undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­son­ar.

Nær allar kann­anir sem gerðar hafa verið síðan að rík­is­stjórnin tók við völdum í jan­úar hafa sýnt hana kol­fallna. Könnun Gallup sem birt var fyrr í vik­unni var ekki und­an­tekn­ing frá því. Hún sýndi að rík­is­stjórnin nyti ein­ungis trausts 32,7 pró­sent kjós­enda og að flokk­arnir sem að henni standa – Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Við­reisn og Björt fram­tíð — myndu aðeins ná inn 21 þing­manni á þing ef kosið yrði í dag, eða ell­efu færri en í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Rík­is­stjórnin hefur sem stendur eins manns meiri­hluta á þingi.

Sam­­kvæmt könn­un­inni er Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn stærsti flokkur lands­ins. 26,5 pró­­sent segja að þeir myndu kjósa hann sem myndi þýða að flokk­­ur­inn fengi 18 þing­­menn. Sam­­starfs­­flokkar Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins í rík­­is­­stjórn, Við­reisn og Björt fram­­tíð, halda áfram að mæl­­ast með mjög lítið fylgi. Við­reisn myndi fá 5,3 pró­­sent atkvæða ef kosið yrði í dag og rétt skríða inn á þing með þrjá þing­­menn. Flokk­­ur­inn er með sjö þing­­menn í dag. Staðan hjá Bjartri fram­­tíð er enn verri. Ein­ungis 3,7 pró­­sent aðspurðra í könnun Gallup sögð­ust ætla að kjósa flokk­inn. Það myndi þýða að Björt fram­­tíð næði ekki inn manni á þing en flokk­­ur­inn hefur nú fjóra þing­­menn.

Auglýsing

Þessi staða er tekin fyrir í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins í morg­un. Þar segir að það sé dálítið skrýtið að rík­is­stjórn­inni skuli refsað svo hart í mæl­ingum í ljósi þess að við gerð stjórn­ar­sátt­mála hennar hafi ein­sett sér að gera helst ekki neitt. „Það er ekki auð­velt að benda á rík­is­stjórn sem hefur fylgt sínum sátt­mála betur eftir frá upp­hafi sínu. Það auð­veldar henni stað­fest­una að fátt er hald­fast í þessum sátt­mála ef frá er skil­inn nokkuð ákveð­inn rammi um það hvernig megi fjölga inn­flytj­endum á Íslandi veru­lega á sem skemmstum tíma. Sú fjölgun hefur enda orðið svo mikil að meira að segja frú Merkel kynni að fara hjá sér. Það sem kemst næst því að hafa eitt­hvert hald í þessum und­ar­lega sátt­mála er að gefið er til kynna að rík­is­stjórnin stefni að því að setja Evr­ópu­mál í upp­lausn þegar lok kjör­tíma­bils nálg­ast. Þessi leið­ar­vísir er að vísu mjög þoku­kenndur en helst er að skilja að það upp­nám sem sátt­máli rík­is­stjórn­ar­innar boðar verði ekki á sam­eig­in­lega ábyrgð henn­ar! Ein­hverjir eru í spyrja sig og aðra, með hlið­sjón af fallandi stuðn­ingi, hvort þessi rík­is­stjórn sé við það að falla. En það er með öllu óvíst að hún sé fær um það. Rík­is­stjórn, sem sam­kvæmt sam­eig­in­legum sátt­mála sínum stendur ekki fyrir neitt, á ekki auð­velt að finna sér mál til að falla á. Meira að segja þegar hún mætir með sín allra vit­laus­ustu mál fyrir þingið mun stjórn­ar­and­staðan taka þeim fagn­andi. Rík­is­stjórn sem telur að það bendi til þess að hún sé á réttri leið hefur týnt átta­vit­anum sem hún fékk í ferm­ing­ar­gjöf.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent