Segir Samkeppnisyfirvöld verða að taka tillit til áhrifa af komu Costco

Áhrif Costco á íslenskan dagvörumarkað virðast vera mikil. Hagar hafa tvívegis sent frá sér afkomuviðvörun og bréf í félaginu hafa hríðfallið í verði. Framkvæmdastjóri SVÞ segir Samkeppniseftirlitið verða að taka tillit til hinna breyttu aðstæðna.

Innkoma Costco á íslenskan dagvörumarkað hefur gjörbreytt stöðunni á honum. Fyrirtækið leggur m.a. mikið upp úr því að selja grænmeti og ávexti.
Innkoma Costco á íslenskan dagvörumarkað hefur gjörbreytt stöðunni á honum. Fyrirtækið leggur m.a. mikið upp úr því að selja grænmeti og ávexti.
Auglýsing

Andrés Magn­ús­son, framkmdastjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu (SVÞ), segir sam­keppn­is­yf­ir­völd verði að taka til­lit til þess að sam­keppn­isum­hverfið hér­lendis sé að gjör­breyt­ast og að það verði að fylgj­ast með þeirri þróun sem nú sé að eiga sér stað á smá­sölu­mark­aði. Það sé áhyggju­efni ef að ákvörðun

­Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í máli Haga og Lyfju, þar sem eft­ir­litið ógilti sam­runa félag­anna tveggja, verði ávísun á það sem komi skuli í sam­bæri­legum málum sem eft­ir­litið hefur nú til með­ferð­ar. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Hagar eru stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi. Það rekur meðal ann­ars versl­anir Bónus og Hag­kaupa. Félag­ið, sem er skráð á markað og er að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, hefur reynt að bregð­ast við inn­komu alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja, sér­stak­lega Costco og H&M, á íslenskan markað með ýmsum hætti. Á meðal þeirra aðgerða sem félagið greip til var að loka flestum tísku­vöru­versl­unum sem það rak, fækka fer­metrum sem það var með starf­semi sína á og með sam­ein­ing­um, en Hagar sam­þykktu í fyrra­haust að kaupa Lyfju af íslenska rík­inu á 6,7 millj­arða króna og í apríl síð­ast­liðnum að kaupa Olís á 9,1 millj­arð króna. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hef­ur, líkt og áður sagði, ógilt sam­run­ann við Lyfju en er með sam­run­ann við Olís til með­ferð­ar. Festi, sem rekur m.a. versl­anir Krón­unnar og er einnig með umtals­verða mark­aðs­hlut­deild á dag­vöru­mark­aði, hefur einnig brugð­ist við inn­komu alþjóð­legra fyr­ir­tækja með því að loka versl­un­um, fækka fer­metrum og með því að sam­ein­ast olíu­fé­lag­inu N1. Sá sam­runi bíður einnig sam­þykkis Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Auglýsing
Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að ógilda sam­runa Haga og Lyfju kom fram að ástæður ógild­ing­­ar­innar hafi verið svip­aður rekstur fyr­ir­tækj­anna, mark­aðs­ráð­andi staða Haga og tak­­mörkuð áhrif vegna opnun Costco. Eft­ir­litið fjall­aði þó ítar­lega um Costco í ákvörðun sinni og sagði að fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar gæfu til kynna að inn­koma fyr­ir­tæk­is­ins hefði jákvæð áhrif á sam­keppni á dag­vöru­mark­aði. Fullt til­efni væri þó til að fylgj­ast náið með þróun á mark­aðnum næstu miss­eri. Hægt er að lesa nið­ur­stöðu og skýrslu eft­ir­lits­ins hér.

Hagar eru ósam­mála nið­ur­stöð­unni og hafa tví­vegis sent frá sér afkomu­við­vörun á síð­ustu mán­uðum þar sem greint var frá sölu­sam­drætti eftir að Costco hóf starf­semi í maí síð­ast­liðn­um. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar á föstu­dag sagði að gera mætti ráð fyrir að EBITDA Haga verði um 20 pró­­sent lægri fyrir tíma­bilið mars til ágúst 2017 en á sama tíma­bili í fyrra.

Mark­aðs­verð Haga hefur einnig hríð­fallið síðan að Costco opn­aði. Alls hefur mark­aðsvirði Haga lækkað úr 64,6 millj­­arði króna dag­inn áður en að Costco opn­aði, í 46,1 millj­­arða króna, eða um 18,5 millj­­arða króna.

Andrés segir í Frétta­blað­inu í dag að þró­unin á mark­aðnum sé gríð­ar­lega hröð. Sam­keppn­is­eft­ir­litið megi hafa sig allt við ef það ætlar að fylgj­ast með henni. „Það er afskap­lega hætt við því að for­sendur sem liggja fyrir ákvörðun sem er tekin á ákveðnum tíma­punkti verði orðnar úreltar skömmu síð­ar. Það er stóra áhyggju­efn­ið[...]Við gjör­breyttar kringum stæður leita versl­anir auð­vitað leiða til að ná fram eins mik­illi hag­ræð­ingu og hægt er.“

Hann segir ekk­ert benda til þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi í ákvörðun sinni í máli Haga og Lyfju tekið til­lit til áhrif­anna af komu Costco.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent