Arion lækkar hagvaxtarvæntingar

Greiningardeild Arion banka hefur lækkað væntingar sínar fyrir hagvöxt á árinu um 0,6 prósentustig. Lækkunin er aðallega vegna gruns um minni fjárfestingar.

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni
Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni
Auglýsing

Grein­ing­ar­deild Arion banka gerir ráð fyrir 5,3% hag­vexti í ár, en hag­vaxt­ar­spár bank­ans voru 5,9% í mars. Stærsti þáttur lækk­un­ar­innar eru vís­bend­ingar um minni atvinnu­vega­fjár­fest­ingu. Þetta kemur fram í upp­færðri hag­vaxt­ar­spá bank­ans, sem birt var í dag.

Í upp­færsl­unni kemur einnig fram yfir­stand­andi hag­vaxt­ar­skeið, sem staðið hefur yfir í sex ár muni standa í að minnsta kosti þrjú ár í við­bót. Einka­neyslan er sögð vera ein helsta drif­fjöður hag­vaxt­ar­ins, studd áfram af litlu atvinnu­leysi og kaup­mátt­ar­aukn­ingu, en þjón­ustu­út­flutn­ingur ferða­þjón­ust­unnar leggi einnig hönd á plóg. Búist er við að hægja muni á vexti fjár­fest­ingar á næst­unni, þótt fram­lag hennar til hag­vaxtar verði jákvætt til árs­ins 2020. 

Minni afgang­ur, lægra gengi og hærri verð­bólga

Grein­ing­ar­deildin spáir minnk­andi við­skipta­af­gangi við útlönd á næstu tveimur árum, sökum vax­andi halla á vöru­við­skipt­um. Einnig er gert ráð fyrir að krónan muni styrkj­ast lít­il­lega í náinni fram­tíð, en fari svo að veikj­ast um mitt ár 2018.  Sam­hliða lækk­andi við­skipta­jöfn­uði og geng­is­veik­ingu er búist við að verð­bólga muni aukast á næst­unni og fari yfir verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans.  Þó muni hækk­unin vera smá­vægi­leg þar sem hæg­ari hús­næð­is­verð­hækk­anir vegi upp á móti lægra gengi.

Auglýsing

Minna keypt af flug­vél­um 

Hag­vöxtur á fyrsta árs­fjórð­ungi var 5% og nokkuð undir vænt­ingar grein­inga­deild­ar­innar þar sem búist var við meiri vexti í utan­rík­is­verslun og fjár­fest­ingu. Þó gerði grein­ing­ar­deildin ráð fyrir því í mars að hag­vöxt­ur­inn myndi aukast eftir því sem leið og árið og verða 5,9% fyrir 2017. Út frá hag­vaxt­ar­vísum fyrir annan árs­fjórð­ung hefur deildin hins vegar lækkað vænt­ingar sínar niður í 5,3%, aðal­lega vegna vís­bend­ingar um minni vöxt atvinnu­vega­fjár­fest­ing­ar.

Í mars var búist við að atvinnu­vega­fjár­fest­ing myndi vaxa um 19,7% á árinu, en nú er búist við að vöxt­ur­inn verði um 5,7%. Mestu muni um minni almenna atvinnu­vega­fjár­fest­ingu og að flug­vélar virð­ist frekar leigðar en keypt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent