Þjónusta við hælisleitendur boðin út á EES – Kostnaður metinn á 830 milljónir

Innanríkisráðuneytið hefur birt forauglýsingu þar sem leitað er eftir tilboðum í aðstoð og þjónustu við hælisleitendur. Samkvæmt auglýsingunni er virði samningsins metið á 830 milljónir króna án virðisaukaskatts.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur birt foraug­lýs­ingu á Evr­ópska efna­hags­svæð­inu (EES) um samn­ing um aðstoð og þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Í aug­lýs­ing­unni er áhuga­sömum aðilum boðið að láta áhuga sinn í ljós til 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Sam­kvæmt henni er virði samn­ings­ins metið 830 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts. Aug­lýs­ingin var birt 1. ágúst þrátt fyrir að dóms­mála­ráðu­neytið hafi ekki greint frá til­urð hennar í frétt á heima­síðu sinni fyrr en í gær.

Í aug­lýs­ing­unni kemur fram að samn­ing­ur­inn sem sé í boði, náist saman við áhuga­sama, sé til 36 mán­aða með mögu­leika á tólf mán­aða fram­leng­ingu í tvígang.

Í frétt á vef ráðu­neyt­is­ins segir að mark­mið samn­ings­ins sé að „tryggja öllum umsækj­endum um alþjóð­lega vernd félags­legan stuðn­ing, upp­lýs­inga­gjöf og sjálf­stæða og óháða hags­muna­gæslu. Til­gang­ur­inn er að jafn­ræðis sé gætt, umsækj­endur fái vand­aða máls­með­ferð, við­eig­andi þjón­ustu og eigi greiðan aðgang að stuðn­ingi og upp­lýs­ing­um.“ Í aug­lýs­ing­unni kemur einnig frá hvers konar þjón­usta skuli veitt í þessu sam­bandi, til dæmis varð­andi félags­lega aðstoð og rétt­ar­gæslu.

Auglýsing

Sam­­­kvæmt tölum sem birtar eru á vef Útlend­inga­­­stofn­unar sóttu 1.132 um vernd hér­­­­­lendis á árinu 2016. Af þeim var alls 111 manns veitt vernd, við­­­bót­­­ar­vernd eða mann­úð­­­ar­­­leyfi til að dvelja á Íslandi. Öðrum var annað hvort synj­að, þeir end­­­ur­­­send­ir, veitt vernd í öðru ríki eða drógu til baka umsóknir sín­­­ar.

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017 sóttu alls 500 manns um vernd. Á árinu hafa 61 fengið vernd, við­­­bót­­­ar­vernd eða mann­úð­­­ar­­­leyfi. Í des­em­ber 2016 voru 820 umsækj­endur hér­­­­­lendis annað hvort þjón­u­staðir af sveit­­­ar­­­fé­lögum eða Útlend­inga­­­stofn­un.

Har­aldur Bene­dikts­son, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, sagði í útvarps­þætti á Útvarpi Sögu í síð­ustu viku að horfur séu á því að kostn­aður vegna mót­töku hæl­is­leit­enda hér­lendis fari rúm­lega þrjá millj­arða króna fram úr fjár­lögum á þessu ári. Í fjár­lögum fyrir 2017 sam­þykkti Alþingi 2,5 millj­arða króna í mála­flokk­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent