Ísland er eina EES-landið með ríkiseinokun á póstþjónustu

Í engu öðru EES-landi en Íslandi hefur ríkið einkarétt á póstþjónustu. Til stendur að afnema einkaréttinn með nýju frumvarpi, en Viðskiptaráð styður það heilshugar.

Póstþjónusta á Íslandi er í dýrari kantinum.
Póstþjónusta á Íslandi er í dýrari kantinum.
Auglýsing
Ísland er eina landið innan Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins sem ekki hefur afnumið einka­rétt rík­is­ins á póst­þjón­ustu. Til stendur að afnema einka­rétt­inn, en frum­varp þess efnis verður lík­lega lagt fyrir á Alþingi í haust. Þetta kemur fram í nýrri umsögn sem Við­skipta­ráð Íslands skil­aði inn til sam­göng­u-og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins í dag. 

Eina EES-landið

Umsögn Við­skipta­ráðs er um drög að frum­varpi um póst­þjón­ustu sem birt voru á vef Stjórn­ar­ráðs­ins fyrir mán­uði síð­an. Í drög­unum er lagt til að  einka­réttur rík­is­ins verði lagður niður og opnað fyrir sam­keppni á póst­mark­að, en þannig yrði hag­kvæm lág­marks­þjón­usta tryggð um allt land. 

Auglýsing

Sam­kvæmt drög­unum að laga­frum­varp­inu eiga umræddar breyt­ingar sér langan aðdrag­anda. Einka­réttur rík­is­ins á póst­þjón­ustu var skil­greindur í lögum árið 1940, en frá 1998 hefur dregið úr honum eftir breyt­ingum á reglu­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins. 

Núgild­andi lög eru frá 2002, en sam­kvæmt þeim eru bréf undir 50 grömmum háð einka­rétti. Frum­varp­ið, sem búist er við að verði lagt fram í haust, er byggt á til­skipun Evr­ópu­þings­ins frá árinu 2008. Öll önnur ríki innan EES hafa þegar inn­leitt til­skip­un­ina og fellt einka­rétt hins opin­bera á póst­þjón­ustu úr gildi

Við­skipta­ráð seg­ist fagna þessu skrefi og tekur heils­hugar undir meg­in­efni frum­varps­ins. Sam­kvæmt umsögn­inni telur ráðið afnám einka­réttar vera fyrsta skrefið í átt að við­un­andi póst­þjón­usta verði stunduð á hag­kvæman hátt, í virku sam­keppn­isum­hverfi og með lág­marks­kostn­aði fyrir hið opin­bera.

Í hópi með Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu

Við­skipta­ráð eru ekki einu sam­tökin sem gagn­rýnt starf­semi Íslands­pósts, en í febr­úar síð­ast­liðnum setti Sam­keppn­is­eft­ir­litið fyr­ir­tæk­inu skil­yrði um breyt­ingar á starf­semi þess. Voru skil­yrðin sett til þess að vinna á móti sam­keppn­is­hömlum sem séu til staðar vegna mark­aðs­ráð­andi stöðu Íslands­póst­s. 

Ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var kærð af Póst­mark­aðnum ehf. og móð­ur­fé­lagi þess, Sam­skipum ehf., þar sem þeir töldu ekki vera tekið nægt til­lit til kvart­anna þeirra. Í dag sendi Sam­keppn­is­eft­ir­litið hins vegar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem Áfrýj­un­ar­nefnd  sam­keppn­is­mála hefur stað­fest ákvörðun eft­ir­lits­ins og stendur hún því enn.

Í dýr­ari kant­inum

Tölu­verður kostn­að­ar­munur er á póst­þjón­ustu Íslands og ann­arra landa, ef marka má verð­skrár nágranna­land­anna.  Grafið hér að neðan sýnir verð á B-póst­send­ingu inn­an­lands á 20 gramma bréfi. Upp­lýs­ingar eru fengnar frá Íslands­pósti auk póst­fyr­ir­tækja í Sví­þjóðNor­egiFinn­landi og Dan­mörku.

Verð á 20 gramma bréfsendingu innanlands á Norðurlöndunum. B-póstur, VSK innifalinn.

B-Póst­send­ingar á Íslandi eru dýrastar allra Norð­ur­landa, en mestur er mun­ur­inn 50% milli Íslands og Sví­þjóð­ar. 

Hag­fræði­stofnun hefur klárað skýrslu um verð­lagn­ingu á grunn­þjón­ustu Íslands­pósts, en skýrslan verður birt á vef stjórn­ar­ráðs­ins á næstu dög­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent