Hugarafl fær fjármagn til að starfa áfram

Stjórnvöld hafa tilkynnt um að stefnt verði að langtímasamningi um aukin framlög til Hugarafls til að styrkja starf samtakanna, sem starfa í þágu fólks með geðraskanir.

hugarafl
Auglýsing

Stjórn­völd stefna að því að gera lang­tíma­samn­ing um aukin fram­lög til Hug­arafls til að styrkja starf sam­tak­anna í þágu fólks með geð­rask­an­ir. Þetta var nið­ur­staða fundar sem félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og for­svars­menn Hug­arafls áttu í morg­un.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að fund­inn hafi setið af hálfu Hug­arafls stjórn­ar­menn­irnir Auður Axels­dótt­ir, Sig­ur­borg Sveins­dóttir og Árni Stein­gríms­son auk Hall­dórs Más Sæmunds­sonar aðstand­anda. Af hálfu ráðu­neyt­is­ins sátu, auk Þor­steins Víglunds­son­ar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, aðstoð­ar­menn hans og aðstoð­ar­menn heil­brigð­is­ráð­herra. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að á fund­inum hafi verið farið yfir þá vinnu sem farið hefur fram í ráðu­neyt­inu að und­an­förnu, sam­eig­in­lega af hálfu heil­brigð­is- og félags­hluta þess, til að greina stöðu Hug­arafls og finna leiðir til að styðja við félagið þannig að það nýt­ist sem best fólki með geð­ræn vanda­mál. 

Þor­steinn segir að Hug­ar­afl hafi unnið mik­il­vægt braut­ryðj­enda­starf og að um árangur af starfi þeirra verði ekki deilt. Hann lýsti vilja sínum til að efla starf Hug­arafls, einkum virkni og end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræði sam­tak­anna sem hafa reynst vel fjölda fólks sem glímt hefur við geð­rask­anir af ýmsum toga. „Það er mik­il­vægt að starf­semin nái að þró­ast áfram og efl­ast og það erum við sam­mála um að tak­ist best með vönd­uðum lang­tíma­samn­ingi um starf­sem­ina þar sem fjallað er um mark­mið og árang­urs­mæl­ing­ar“ sagði Þor­steinn Víglunds­son meðal ann­ars á fund­in­um.

Auglýsing

Auður Axels­dóttir sagð­ist á fund­inum ánægð með þá stefnu sem mál­efni Hug­arafls hafi tek­ið. Gerð lang­tíma­samn­ing sé æski­leg nið­ur­staða og hún treysti því einnig að far­sæl lausn náist fljótt sem tryggi starf­semi sam­tak­anna á næstu mán­uð­um: „Við finnum að það er fullur skiln­ingur á því hvað starf­semi Hug­arafls er mik­il­væg í íslensku sam­fé­lagi og erum afar ánægð með þá við­ur­kenn­ingu“ sagði Auður meðal ann­ars. Undir þetta tóku aðrir full­trúa Hug­arafls á fund­inum og sögð­ust hafa miklar  vænt­ingar til þeirrar vinnu sem framundan er við gerð lang­tíma­samn­ings og binda vonir við að nið­ur­staða náist fljótt til að eyða óvissu.

Hug­ar­afl hefur frá árinu 2011 notið styrkja frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu sem nema sam­tals 18,6 millj­ónum króna, að mestu frá heil­brigð­is­hluta ráðu­neyt­is­ins. Sam­tökin fengu einnig 5 millj­óna króna styrk frá fjár­laga­nefnd Alþingis árið 2016. Auk þessa er í gildi samn­ingur milli Hug­arafls og Vinnu­mála­stofn­unar sem kveður á um þjón­ustu­kaup stofn­un­ar­innar af Hug­ar­afli fyrir 10 millj­ónir króna árlega. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent