Afnám bótaskerðingar gæti kostað 11,4 milljarða árlega

Afnám svokallaðrar „krónu á móti krónu“ bótaskerðingar vegna tekna öryrkja gæti kostað ríkissjóð 11,4 milljarða íslenskra króna á ári hverju.

Auglýsing
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.

Ef hætt yrði að skerða fram­færslu­upp­bót „krónu á móti krónu“ vegna ann­arra tekna líf­eyr­is­þega gæti það kostað rík­is­sjóð 11,4 millj­arða krónu árlega. Þetta kemur fram í svari félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi.

Hall­dóra Mog­en­sen þing­maður Pírata lagði fram fyr­ir­spurn til Þor­steins Víglunds­son­ar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, á Alþingi þann 29. maí síð­ast­lið­inn. Fyr­ir­spurnin sner­ist um hugs­an­legan kostnað rík­is­sjóð ef svokölluð „króna á móti krónu“ bóta­skerð­ing yrði afnum­in.

Svar ráð­herra við fyr­ir­spurn­inni birt­ist á vef Alþingis í dag, en sam­kvæmt því er ekki hægt að segja nákvæm­lega til um kostn­að­inn. Fram­færslu­upp­bætur eru á bil­inu 4.953-58.985 kr. á mán­uði, eftir því hversu gamlir örorku­líf­eyr­is­þegar voru þegar þeir voru fyrst metnir til 75% örorku og hvort þeir fá greidda heim­il­is­upp­bót eða ekki.

Auglýsing

Ef miðað er við að við­bót við tekju­trygg­ingu yrði 58.986 kr. er kostn­aður vegna afnáms bóta­skerð­ingar þeirra öryrkja sem hafa aðrar tekjur áætl­aður 11.438 millj­ónir króna á ári hverju.

Enn fremur spurði Hall­dóra hver við­bót­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs yrði ef ein­ungis 60% allra tekna öryrkj­anna væri notuð til útreikn­ings fram­færslu­upp­bót­ar, en sam­kvæmt ráð­herr­anum myndi það kosta ríkið 14.500 millj­ónir króna á ári hverju. Sömu­leiðis var spurt hversu mik­ill kostn­aður fælist í því ef það giltu sömu útreikn­ings­reglur um sér­staka fram­færslu­upp­bót og um tekju­trygg­ingu, en ráð­herra svar­aði að hann gæti numið 6,6 millj­örðum króna á ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent