Fyrirtæki frá Alaska kaupa 75% í Keahótelum

Bandarísku fjárfestingafyrirtækin JL Properties og Pt Capital Advisors hafa keypt 75% hlut í Keahótelum.

Hótel Borg, eitt hótela í eigu Keahótela
Hótel Borg, eitt hótela í eigu Keahótela
Auglýsing

Horn II slhf., og Selen ehf. hafa selt sinn hlut í Kea­hót­elum ehf. Með söl­unni eign­ast banda­rísk fyr­ir­tæki 75% hlut í fyr­ir­tæk­ið, en heild­ar­kaup­verð fyr­ir­tæk­is­ins nam 5,5 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins sem kom út í dag og greint var frá kaup­verð­inu á vef Vísis.

Kaup­andi Kea­hót­ela var fjár­fest­inga­fyr­ir­tækið K Acquisitions ehf., en að baki því félagi standa banda­ríska fast­eigna­fé­lagið JL Properties með 25% hlut, banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Pt Capi­tal Advis­ors með 50% hlut og Trölla­hvönn ehf. með 25% hlut. Banda­rísku fyr­ir­tækin eru nýir eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins, en Trölla­hvönn hefur verið í eig­enda­hópi Kea­hót­ela frá árinu 2012. 

Sam­kvæmt frétta­til­kynn­ing­unni er JL Properties stærsta fast­eigna-, fast­eigna­þró­un­ar-, og fjár­fest­inga­fé­lag Alaska. Eigna­safn félags­ins telur yfir 185.000 fer­metra og er mark­aðsvirði þess metið á yfir 2 millj­arða Banda­ríkja­dala. Heima­mark­aður félags­ins er Alaska en félagið á jafn­framt eignir í Utah, Georgíu og Flór­día fylkj­um. Safnið sam­anstendur af bæði atvinnu- og íbúð­ar­hús­næði. Kaupin á Kea­hót­elum eru fyrsta fjár­fest­ing JL Properties á Íslandi.

Auglýsing

Pt Capi­tal Advis­ors LLC er dótt­ur­fé­lag banda­rísks eigna­stýr­inga­fyr­ir­tækis sem er með höf­uð­stöðvar í Anchorage í Alaska. Félagið sér­hæfir sig í fjár­fest­ingum á norð­ur­slóð­um, þar á meðal Ala­ska, Norð­ur­-Kana­da, Græn­land og Ísland. Félagið keypti ráð­andi hlut í fjar­skipta­fé­lag­inu Nova í mars síð­ast­liðn­um.

Upp­fært kl. 14:57:

Sam­kvæmt frétt Vísis um kaupin var heild­ar­kaup­verðið 5,5 millj­arðar króna, en mið­ill­inn hefur það eftir heim­ild­ar­mönnum sín­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent