Einn tilkynnir framboð til varaformanns og annar að hugsa málið

Háskólaprófessor hefur tilkynnt framboð til varaformanns Vinstri grænna. Varaþingmaður er að hugsa málið. Þeir eru báðir úr kjördæmi fráfarandi varaformanns.

Auglýsing
Edward H. Huijbens

Edward H. Hui­jbens, pró­fessor við Háskól­ann á Akur­eyri og fyrr­ver­andi for­stöðu­maður Rann­sókn­ar­mið­stöðvar ferða­mála, ætlar að bjóða sig fram til vara­for­manns Vinstri grænna á lands­fundi flokks­ins sem fram fer í októ­ber. Þá hafa ýmsir komið að mál ivið Óla Hall­dórs­son, sveit­ar­stjórn­ar­mann í Norð­ur­þingi og vara­þing­mann, um að sækj­ast eftir emb­ætt­inu og hann er að skoða mál­ið. Þeir eru báðir úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sama kjör­dæmi og frá­far­andi vara­for­maður flokks­ins og heima­kjör­dæmi Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, sem var for­maður Vinstri grænna um ára­bil. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Björn Valur Gísla­­son, sem verið hefur vara­­for­­maður Vinstri grænna frá því í febr­­úar 2013, til­kynnti á föstu­dag að hann myndi hætta sem slík­ur. Björn Valur var síð­­­ast end­ur­kjör­inn vara­­for­­maður á lands­fundi Vinstri grænna í októ­ber 2015. Nýr vara­­for­­maður verður kos­inn á lands­fundi flokks­ins sem hald­inn verður í Reykja­vík 6-8. októ­ber næst­kom­andi. Björn Valur ætlar ekki að vera í fram­­boði þar.

Auglýsing

Í Frétta­blað­inu er greint frá því að það hafi ekki komið fólki innan Vinstri grænna á óvart að Björn Valur væri að hætta. Hann hefði verið mikið fjar­ver­andi að und­an­förnu og sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins hefði Reykja­vík­ur­armur flokks­ins „fengið nóg af Birni fyrir þó nokkru og það hafi verið gagn­kvæmt“.Þá hafi hótun Björns Vals um að kæra gjald­kera Vinstri grænna, Unu Hild­ar­dótt­ur, fyrir hat­urs­orð­ræðu ekki farið vel í suma flokks­menn. Una hafði sett stöðu­upp­færslu á Twitter þann 13. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem stóð: „Ég hata mið­alda karl­menn“. Í Frétta­blað­inu er einnig nefnt að stefna Björn Vals í  ýmsum málum hafi verið á skjön við stefnu flokks­ins og ekki þótt hæfa að vara­for­maður flokks sem leggur áherslu á umhverf­is­vernd hafi starfað við að þjón­usta olíu­bor­p­alla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent