Stýrivextir áfram 4,5 prósent

Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Verðbólga hefur verið undir markmiði bankans frá því í febrúar 2014.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreytt­um. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því áfram 4,5 pró­sent. 

Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar segir að útlit sé fyrir að hag­vöxt­ur í ár verði hraður eins og á síð­asta ári en nokkru hæg­ari en spáð var í maí­hefti Pen­inga­mála. Hag­vöxt­ur­inn er einkum drif­inn af vexti ferða­þjón­ustu og einka­neyslu auk þess sem útlit sé fyrir slökun í aðhaldi opin­berra fjár­mála í ár.

Í yfir­lýs­ing­unni segir enn frem­ur: „Verð­bólga var lít­il­lega minni á öðrum fjórð­ungi árs­ins en spáð var í maí. Hún mæld­ist 1,8% í júlí og hafði auk­ist úr 1,5% í júní. Und­ir­liggj­andi verð­bólga virð­ist hins vegar hafa haldið áfram að minnka. Gengi krón­unnar hefur lækkað frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar en það er þó enn tæp­lega 8% hærra en á sama tíma í fyrra. Gagn­stæðir kraftar hafa sem fyrr áhrif á verð­bólgu­horf­ur, þar sem hækkun gengis krón­unnar und­an­farið ár og lítil alþjóð­leg verð­bólga vega á móti verð­bólgu­þrýst­ingi af inn­lendum rót­um. Hefur bilið á milli verð­þró­unar inn­lendra þátta, einkum hús­næð­is­kostn­að­ar, og erlendra þátta haldið áfram að aukast síð­ustu mán­uði, sem eykur óvissu um verð­bólgu­horfur til næsta árs.

Auglýsing

Frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar hafa skamm­tíma verð­bólgu­vænt­ingar hækkað lít­il­lega sem lík­lega end­ur­speglar að hluta áhrif lækk­unar á gengi krón­unnar að und­an­förnu. Verð­bólgu­vænt­ingar til langs tíma hafa hins vegar lítið breyst sé miðað við nýlega könnun Seðla­bank­ans á verð­bólgu­vænt­ingum mark­aðs­að­ila. Lengri tíma verð­bólgu­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði hefur þó hækkað und­an­farna daga en það sem af er þessum árs­fjórð­ungi er það í ágætu sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið bank­ans.

Spenna í þjóð­ar­bú­skapnum kallar á pen­inga­legt aðhald svo að tryggja megi verð­stöð­ug­leika til með­al­langs tíma. Hrær­ingar hafa verið á gjald­eyr­is­mark­aði og vís­bend­ingar eru um að breyt­ingar gætu verið framundan í utan­rík­is­við­skiptum og á hús­næð­is­mark­aði. Of snemmt er að full­yrða um umfang og afleið­ingar þeirra. Raun­vextir bank­ans hafa lækkað lít­il­lega frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar en virð­ast við núver­andi aðstæður sam­rým­ast því sem þarf til að verð­bólga verði að jafn­aði við mark­mið. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun ráð­ast af fram­vindu efna­hags­mála og annarri hag­stjórn.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent