Amazon boðar lægra verð í Whole Foods og öflugri netverslun

Ævintýralegur vöxtur Amazon heldur áfram. Áskrifendur Amazon Prime munu nú geta verslað á afsláttarkjörum í Whole Foods.

Amazon-Fresh.jpg
Auglýsing

Hlut­hafar Whole Foods hafa nú form­lega sam­þykkt kauptil­boð tækni- og smá­söluris­ans Amazon en verð­mið­inn var 13,7 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 1.500 millj­örðum króna. Form­leg sam­ein­ing hefur ekki ennþá gengið í gegn, en það stytt­ist í að það ger­ist.

Amazon hyggst lækka verð á fjölda vöru­teg­unda í Whole Foods og tengja saman Amazon Prime vild­ar­kjara­kerfi á vef fyr­ir­tæk­is­ins við versl­ana­keðj­una. Þannig munu áskrif­endur Amazon Prime fá afslátt­ar­kjör í Whole Foods.

Talið er að Amazon Prime með­limir séu næstum 80 millj­ónir á heims­vísu, en Amazon gefur ekki upp nákvæma tölu áskrif­enda sinna í upp­gjörstil­kynn­ing­um. Grein­endur hafa þó greint upp­gjör félags­ins með fyrr­greindum hætt­i. 

Auglýsing

Fast­lega er búist við því að Amazon muni kynna marg­vís­legar breyt­ingar á starf­semi sinni, á næstu miss­erum, en fyr­ir­tækið vinnur nú að miklum vaxt­ar­á­formum í Evr­ópu og mið­aust­ur­lönd­um, þar sem fyr­ir­tækið ætlar sér að byggja upp sam­bæri­lega smá­sölu­starf­semi og hefur náð ræki­legri fót­festu í Banda­ríkj­un­um. 

Gengi bréfa helstu sam­keppn­is­að­ila Amazon féll, sam­kvæmt umfjöllun BBC, eftir að frétt­irnar bár­ust út um að Amazon hefði hug á því að lækka vöru­verð í Whole Foods, og efla versl­un­ina með harð­ari sam­keppni um verð við önnur fyr­ir­tæki. Vöru­verð í Whole Foods hefur verið á bil­inu 15 til 20 pró­sent hærra en hjá mörgum sam­keppn­is­að­il­um, en að á móti hefur fyr­ir­tækið lagt mikið upp úr gæða­vöru og góðri versl­un­ar­upp­lif­un. 

Í heild eru versl­anir Whole Foods 470 tals­ins. Jeff Bezos, for­stjóri Amazon, hefur látið hafa eftir sér að engar kúvend­ingar verði gerðar á starf­semi Whole Foods, enda fyr­ir­tækið þekkt fyrir afbragðs þjón­ustu og góðar vör­ur. Hins vegar séu mikil tæki­færi í því fólgin að efla net­versl­un, og tengja vöru­merkið við þjón­ustu Amazon. 

Mark­aðsvirði Amazon er í dag 474 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um tæp­lega 50 þús­und millj­örðum króna. Virði fyr­ir­tæk­is­ins er því um fimm­tíu­falt meira en virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í heild sinni. Bezos, sem er stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins, á sjálfur rúm­lega 17 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent