Hvað eru eiginlega að koma margir ferðamenn til landsins?

Margt bendir til þess að tölur yfir fjölda ferðamanna sem heimsækja landið hafi verið ofmetnar.

flugvél
Auglýsing

Fimm af hverjum hund­rað ferða­mönnum hér á landi fara aldrei út úr Leifs­stöð, 6% fer út fyrir flug­vall­ar­svæðið en gistir ekki yfir nótt og 3% ferða­mann­anna eru útlend­ingar sem búsettir eru hér á land­i. 

Þetta sýna nið­ur­stöður könn­unar Isa­via og Ferða­mála­stofu sem fram­kvæmd var nýverið í kjöl­far umræðu sem skap­að­ist í kringum umfjöllun Túrista í vor um hugs­an­legt ofmat á ferða­manna­fjöld­anum. Það er vef­ur­inn Túrist­i.is sem greinir frá könn­un­inni á vef sín­um. „Sú til­gáta byggði á því að far­þegar sem aðeins skipta um flug­fé­lag á Kefla­vík­ur­flug­velli eru taldir sem ferða­menn í taln­ingu Ferða­mála­stofu, en vís­bend­ingar eru um að þessum sjálf­skiptifar­þegum hafi fjölgað síð­ustu miss­er­i. Þegar stærð þess­ara þriggju fyrr­nefndu far­þega­hópa er heim­færð upp á ferða­manna­spá Isa­via fyrir þetta ár kemur í ljós að af þessum rúmu 2,2 millj­ónum ferða­manna, sem gert er ráð fyrir í ár, þá eru 112 þús­und flug­far­þegar sem skipta aðeins um flug­vél, 134 þús­und fara út fyrir flug­stöð­ina yfir dagspart og um 67 þús­und eru útlend­ingar sem eru búsettir eru á land­in­u,“ segir á vef Túrista.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Auglýsing

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ráð­herra ferða­mála, segir að þetta séu ekki nýjar frétt­ir, að tölur um fjölda ferða­manna séu ofmetn­ar. En hún segir að það sé nauð­syn­legt að meta hvert umfangið sé, svo það sé hægt að byggja með ábyggi­legum hætti á gögn­unum í annarri vinn­u. „Það hefur alltaf legið fyrir að fjöldi ferða­manna væri ofmet­inn og sá fyr­ir­vari hefur alltaf verið gerður við töl­urn­ar. Skekkjan er því alls ekki ný af nál­inni. En að sjálf­sögðu er þýð­ing­ar­mikið að fá þetta mat á umfangi hennar og ég mun leggja áherslu á að þetta verði mælt áfram,” segir Þór­dís Kol­brún. „ Á sama hátt og það er mik­il­vægt að ofmeta ekki fjölda ferða­manna er líka mik­il­vægt að ofmeta ekki skekkj­una. Ég get því ekki tekið undir með Sam­tökum ferða­þjón­ust­unnar þegar þau segja að skekkjan sé „að minnsta kosti” sú sem þessi könnun sýn­ir. Hún gæti allt eins verið eitt­hvað minni, og engin rök sem hníga að því að hún sé frekar meiri en minni. Eðli­leg­ast er að miða bara við þá tölu sem mæl­ingin sýn­ir. Ég ítreka að það er mik­il­vægt að halda áfram að auka gæði og nákvæmni mæl­ing­anna og ég mun ræða það við Ferða­mála­stofu, ISA­VIA og SAF,” segir í hún í við­tali við Túrista. 

Sam­kvæmt spám sem grein­endur hafa vitnað til, meðal ann­ars grein­ing­ar­deildir fjár­mála­fyr­ir­tækja og Seðla­banki Íslands, þá er gert ráð fyrir að fjöldi ferða­manna verði um 2,3 millj­ónir á þessu ári, en í fyrra var hann 1,8 millj­ón­ir. Eins og að framan er greint, er þetta þó málum blandið og ekki aug­ljóst hver hin rétta tala er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent